Orka náttúrunnar og Etix Everywhere Borealis semja um rafmagnskaup

Orka nátt­úrunnar og gagnavers­fyrirtækið Etix Everywhere Borealis hafa gert með sér samning um rafmagns­viðskipti. Þetta er annað gagna­verið sem Orka nátt­úrunnar semur við.

Gagnaver Etix Everywhere Borealis við Blönduós.
Gagnaver Etix Everywhere Borealis við Blönduós. Mynd: Etix Everywhere Borealis

Orka nátt­úrunnar og gagnavers­fyrirtækið Etix Everywhere Borealis hafa gert með sér samning um rafmagns­viðskipti vegna uppbyggingar á gagna­verum á Blönduósi og á höfuð­borgar­svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ON.

Þetta er annað gagna­verið sem Orka nátt­úrunnar semur við og með samningnum við ON hefur fyrir­tækið tryggt sér yfir 10 megavött sem eru að losna úr langtíma­samningum.

Etix Everywhere Borealis hefur rekið gagnaver hér á landi um hríð og samkvæmt tilkynningunni vex það hratt en það er í blandaðri eigu íslenskra og erlendra aðila. Fyrir­tækið opnaði nýlega gagnaver við Blönduós og er frekari uppbygging fyrir­huguð þar og á Reykjanesi. Í kjölfar aðkomu alþjóð­lega gagna­versins Etix Everywhere Borealis hefur uppbygging aukist til muna, segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár