Norskur orkuskattur gæti skilað 7 milljörðum í ríkissjóð

Fjármála- og efnahags­ráðherra svaraði fyrir­spurn frá þingmanni Samfylk­ing­ar­innar um hversu mikið gæti skilað sér í ríkissjóð af skatti sem byggir á norskri fyrirmynd.

Mat á tekjum ríkis­sjóðs af auðlindarentu­skatti að norskri fyrirmynd, miðað við núverandi skatt­hlutfall 34,3%, er samkvæmt framan­greindum forsendum kringum 7 milljarðar.

Þetta kemur fram í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, við fyrir­spurn Oddnýjar Harðar­dóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.

Í fyrir­spurninni var sérstak­lega vikið að norskri fyrirmynd, þar sem um hana er fjallað í skýrslu Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands.

Í svari Benedikts kemur fram, að aðeins sé um grófa nálgun að ræða og taka þurfi tillit til ýmissa fyrirvara. „Til að fá nákvæmara og áreiðanlegra tekjumat þarf að fara í viðameiri rannsóknar­vinnu en þá sem fram fór við vinnslu þessa svars. Meðal annars þarf að afla mun ítarlegri gagna en fyrir liggja opinber­lega um starfsemi raforku­fyrirtækja, þar á meðal upplýsinga fyrir hverja virkjun fyrir sig og fá uppgefið raforku­verð langtíma­samninga sérstak­lega. Þá þarf einnig að skoða nánar hvort hinn sérstaki arðsemis­frádráttur sem notaður er við útreikning skattsins í Noregi eigi við hér á landi,“ segir í svari Benedikts.

Sérstaki auðlindarentu­skatturinn (n. grunnrenteskatt) á raforku­fyrirtæki í Noregi er 34,3% af sérstökum skatt­stofni sem reiknaður er fyrir hverja virkjun fyrir sig. Skatt­stofninn samanstendur af reiknuðum sölu­tekjum að frádregnum rekstrar­kostnaði, leyfis­gjöldum, fasteigna­sköttum, afskriftum og sérstökum arðsemis­frádrætti (n. skjermingsfradrag), að því er segir í svari ráðherra. 1 Skatturinn er aðeins lagður á þær virkjanir sem eru með uppsett afl meira en 10 000 kVA (8 MW). Flestar virkjanir sem falla undir þau skilyrði eru í eigu HS Orku, Lands­virkjunar, Orku nátt­úrunnar, Orkubús Vestfjarða og Orku­sölunnar.

Í svari Benedikts er sérstak­lega tekið fram að ekki hafi verið unnt að afla gagna um hverja virkjun fyrir sig, sem skatturinn myndi ná til á Íslandi.

„Þau gögn sem matið á tekjum ríkis­sjóðs af auðlindarentu­skatti að norskri fyrmynd byggist á eru upplýsingar Orku­stofnunar um raforku­vinnslu eftir fyrir­tækjum, meðal­verði raforku á hverja kWst frá Orku­stofnun og upplýsingum sem fram koma í ársreikningum fyrr­nefndra raforku­fyrirtækja. Ekki var unnt að fá upplýsingarnar fyrir hverja virkjun. Tekju­matið hér er þó ekki byggt á upplýsingum eftir virkjunum heldur eftir raforku­fyrirtækjum og því aðeins um ákveðna nálgun að ræða. Byggt er á gögnum frá árinu 2015 nema annað sé tekið fram.“

„Skatt­stofninn reiknast af sölu­tekjum sem eru margfeldi af raforku­framleiðslu og raforku­verði sem fæst á markaði. Ef raforku­framleiðsla er samkvæmt langtíma­samningum er stuðst við samnings­verð í stað markaðs­verðs. Við útreikninga var miðað við að meðal­raforkuverð væri 5,22 krónur/kWst á markaði. Það samsvarar meðal­verði ársins 2015 samkvæmt Orku­stofnun. Upplýsingar um raforku­verð samkvæmt langtíma­samningum eru hins vegar ekki fáanlegar enda í flestum tilfellum um trúnaðar­upplýsingar að ræða. Farin var sú leið að miða við 3,23 krónur/kWst (24,5 USD/MWst) sem er það raforku­verð til iðnaðarins að meðtöldum flutningi sem fram kemur í ársreikningi Lands­virkjunar. Til frádráttar kom kostnaður við raforku­flutning til þess að reyna nálgast verð án flutnings,“ segir í svari ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár