Jörð nötrar nálægt Hellisheiðarvirkjun

Skammt frá þjóðvegi eitt stendur yfir skjálfta­hrina. Upp úr klukkan fjögur varð skjálfti að stærð 3,8.

Skjálftasvæðið
Skjálfta­svæðið Hér sést skjálfta­svæðið frá til­raunamastri skammt frá Nesja­valla­leið.

Jörð nötrar enn þar sem skjálfti að stærðinni 4,5 varð aðeins um 2,5 kíló­metrum frá byggingum við Hellis­heiðar­virkjun vestur af Henglinum klukkan 13.45 í dag. 

Skjálftinn varð á 4,5 kílómetra dýpi. Aðeins 2,5 kíló­metrar eru frá upptökum skjálftans að Hringveginum. Hann fannst vel á höfuð­borgar­svæðinu og í Hvera­gerði.

„Fólk nálægt upptökunum gæti hafa fundið sterkan kipp, séð hluti hristast eða færast til og heyrt brak eða dynki í húsum. Fjær upptökunum fannst skjálftinn vægar þar sem styrkur hrist­ingsins dvínar afar hratt eftir því sem fjær upptökunum dregur,“ sagði í tilkynningu Veður­stofunnar í dag.

Veður­stofan hefur fengið fjölda tilkynninga um að skjálftinn hafi fundist greini­lega víða á Suðvestur­landi m.a. á Akranesi og undir Eyja­fjöllum.

Yfir 700 skjálftar hafa nú orðið á svæðinu síðan í gær. Tiltölu­lega algengt er að skjálfta­hrinur verði á svæðinu, en Veður­stofan mun fylgjast með. 

Uppfært: Annar skjálfti upp á 3,8 varð klukkan 16.18 steinsnar frá vegamótum þjóðvegar 1 og Þrengsla­vegar.

Áhrif skjálft­ansMynd­irnar þrjár sýnir hristikort með áhrifum jarð­skjálft­ans. Stjarnan sýnir hvar skjálft­inn átti sér upp­tök. Litirnir gefa til kynna styrk hrist­ings­ins þar sem heit­ari litir tákna sterk­ari hrist­ing.

Skjálfta­hrinan er nálægt svæði sem talið er í hættumati Veður­stofunnar vera líklegasta upptöku­svæði eldgosa á Reykja­nesskaga. Hún fellur hins vegar undir kerfi Brennisteins­fjalla, eins og það hefur verið skilgreint, en þau fjöll sem kerfið er kennt við liggja vestar og nær Kleifar­vatni.

Búist er við því að stærstu mögulegu skjálftar á höfuð­borgar­svæðinu verði í Brennisteins­fjöllum, eða allt að 6,4 að stærð. Síðast urðu svo stórir skjálftar þar árin 1929 og 1968. Voru áhrif skjálftanna jafnvel talin meiri en af stóra Suðurlands­skjálftanum 1896. Búist er við slíkum skjálftum á um 50 ára fresti að jafnaði í Brennisteins­fjöllum.

Landris og kviku­söfnun heldur áfram undir Svatrsengi. Frá því að eldgosa­hrina hófst á Sund­hnúkagígum norður af Grindavík hefur aldrei verið metið meira rúmmál kviku undir svæðinu. Síðasta gosi lauk þar 17. júlí í fyrra.

Lega skjálft­annaSkjálfta­hrinan á sér stað skammt austur af þjóð­vegi 1, nálægt Litlu kaffi­stof­unni.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár