Ólga í Rúgbrauðsgerðinni

Allir þrír starfs­mennirnir á skrif­stofu Kjara­félags viðskipta­fræðinga og hagfræðinga hafa sagt upp störfum hjá félaginu. Vara­formaður stjórn­ar­innar tilkynnti í yfir­lýsingu í dag að hún væri hætt í stjórninni vegna samstarfs­örðugleika innan hennar.

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Bandalags háskólamanna.
Kjara­fé­lag við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Banda­lags háskóla­manna. Mynd: Af vef Arkitektafélags Íslands

Allir þrír starfs­mennirnir á skrif­stofu Kjara­félags viðskipta­fræðinga og hagfræðinga (KVH) hafa sagt upp störfum og munu láta af störfum á næstu vikum og mánuðum. Frá þessu var greint í yfir­lýsingu frá vara­formanni stjórnar félagsins, Ástu Leonhards­dóttur, sem birtist á vef KVH í dag.

Ásta sagði í þessari sömu yfir­lýsingu að uppsagnir starfs­manna á skrif­stofu stéttar­félagsins mætti rekja til hnökra í samstarfi stjórnar félagsins og að brestir í samstarfi stjórnarinnar hefðu haft afleiðingar á skrif­stofu félagsins sem skapað hefur „stig­vaxandi ókyrrð í starfs­öryggi grand­lausra starfs­manna þar“. Sjálf ætlar hún að hætta í stjórninni. Formaður stjórnar KVH er Stefán Þór Björnsson.

Starfs­mennirnir á skrif­stofu félagsins eru þrír talsins, framkvæmda­stjóri og tveir aðrir sérfræðingar. Skrif­stofa KVH er með aðsetur á sama stað og Bandalag háskóla­manna (BHM) í Borgar­túni 6, í húsi sem gjarnan gengur undir nafninu Rúgbrauðs­gerðin frá fyrri tíð. Félags­menn KVH eru um 1.700 talsins og er félagið það þriðja stærsta innan BHM.

Segir rekstrarrof framundan hjá félaginu

„Nú er svo komið að allir starfs­menn á skrif­stofu KVH hafa sagt upp störfum. Sú þekking sem býr í starfs­fólki skrif­stofunnar mun á næstu dögum og vikum hverfa með brott­hvarfi þeirra. Er það mjög miður og er hér um altjón félagsins að ræða. Komast hefði mátt hjá þessari stöðu en stjórn sneiddi hjá tækifærum til þess þrátt fyrir viðvörunar­merki í þá veru. Framundan er rekstrarrof á skrif­stofu KVH,“ segir í yfir­lýsingu Ástu.

Þar segir einnig að hún sem kjörinn fulltrúi í stjórn KVH sé miður sín yfir því að „horfa á bak metnaðar­fullum og faglegum sérfræðingum félagsins ganga út og hverfa til annarra starfa“.

Ásta segist sjálf ætla að hverfa úr stjórn félagsins í „von um að það verði til þess að auka samstarfs­vilja og virðingar innan stjórnar sem kunni að takmarka það tjón sem þegar er orðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár