Titringur á þingi vegna tillagna um dómara við Landsrétt

Stjórn­ar­flokk­arnir ætla að láta reyna á meiri­hluta fyrir til­lögum dóms­mála­ráð­herra um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt.

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára, 2018 til 2022, var sam­þykkt á Alþingi nú um klukkan tvö með 32 atkvæðum stjórn­ar­liða gegn 31 atkvæði stjórn­ar­and­stöðu, en mikil gagn­rýni kom fram á áætl­unin af hálfu stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, sagði í ræðu sinni að áætl­unin væri í boði svik­inna kosn­inga­lof­orða Við­reisnar - sem ætti ein­ungis eftir að fara aftur inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn - og Bjartrar fram­tíðar, sem leyfðu Sjálf­stæð­is­flokknum að leggja stefnu sína um að mola niður inn­viði, skera niður útgjöld til mennta- og heil­brigð­is­mála, og meira til.

Björn Leví Gunn­ars­son, frá Pírötum, sagði áætl­un­ina vera algjör­lega ófull­nægj­andi, og að á henni væri ekki hægt að byggja, eins og fjöl­margar athuga­semdir við áætl­un­ina á máls­með­ferð­ar­tíma í þing­inu væru til vitnis um.

Tillaga Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt, var ekki tekin fyrir í atkvæða­greiðslu í dag, það verður gert í dag. Þing­fundur hefur verið boð­aður klukkan 11:00. 

Mikill titr­ingur var í þingsölum vegna þessa máls í gær, en meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, það er full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar, sam­þykktu til­lögu dóms­mála­ráð­herra, en stjórn­and­staðan var að móti. Þegar líða tók á kvöldið og inn í nótt­ina, þá var málið rætt mikið milli for­ystu­fólks flokk­anna.

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans, þá mat hæf­is­nefnd um mat á umsækj­endum í stöðu dóm­ara við Lands­rétt Davíð Þór Björg­vins­son, Sig­urð Tómas Magn­ús­son og Ragn­heiði Harð­ar­dóttur hæfust.

Sam­­kvæmt lista hæf­is­­nefnd­­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­­son hrl., sem hefur talið til­lögu dóms­mála­ráð­herra lög­brot - líkt og Lög­manna­fé­lag Íslands - númer 14 á list­an­­um. Einn þeirra sem Sig­ríður Á. And­er­­sen, dóms­­mála­ráð­herra, gerir til­­lögu um að verði á meðal 15 dóm­­ara við Lands­rétt er Jón Finn­­björns­­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­­nefnd­­ar­inn­­ar. Þá er Eiríkur Jóns­­son númer 7 á lista hæf­is­­nefnd­­ar­inn­­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­­lögu um í stöðu dóm­­ara.

Ást­ráður Har­alds­­son og Eiríkur Jóns­­son, ásamt Jóhann­esi Rún­­­ari Jóhanns­­syni og Jóni Hösk­­ulds­­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­son og Jón Finn­­björns­­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­­lögu um í stöðu dóm­­ara við Lands­rétt eru Aðal­­­steinn E. Jón­a­s­­son, Arn­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, Ás­­mundur Helga­­son, Dav­­íð Þór Björg­vins­­son, Her­vör Þor­­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­­ar­s­dótt­ir, Jóhannes Sig­­urðs­­son, Jón Finn­­björns­­son, Krist­­björg Steph­­en­­sen, Oddný Mjöll Arn­­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­­ar­dótt­ir, Sig­­urður Tómas Magn­ús­­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­son og Þor­­geir Ingi Njáls­­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár