Þrír á lista Sigríðar með minni dómarareynslu en Eiríkur

Sá sem dóm­nefnd taldi sjö­unda hæf­astan til að sitja í Lands­rétt náði ekki á til­nefn­ing­ar­lista dóms­mála­ráð­herra yfir þá 15 sem hún vill skipa í emb­ættin. Þrír umsækj­endur sem hlutu náð fyrir augum ráð­herra eru með minni dóm­ara­reynslu en hann.

Eiríkur Jónsson, sem Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að til­nefna ekki í Lands­rétt, var tal­inn sjö­undi hæf­asti umsækj­and­inn af dóm­nefnd. Þess í stað ákvað Sigríður að leggja til að meðal ann­ars Jón Finn­björns­son, sem lenti í 30. sæti á hæf­is­lista dóm­nefnd­ar­innar, verði einn af þeim 15 sem skip­aðir verða í dóm­ara­emb­ættin. Í rök­stuðn­ingi sínum fyrir þess­ari, og fleiri, breyt­ingum á röðun umsækj­enda til­tók Sigríður að nið­ur­staða hennar væru sú að fleiri en þeir 15 sem dóm­nefndin hefði mælt með væru hæfir til að verða dóm­arar við Lands­rétt, og að hún telji að dóm­ara­reynsla ætti að hafa meira vægi en nefndin hafi ákveðið.

Vanda­málið við þennan rök­stuðn­ing er sá að í 117 blað­síðna ítar­legri umsögn dóm­nefndar um umsækj­endur um emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt, sem er aðgengi­leg á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, er reynsla umsækj­enda af dóms­störfum meðal ann­ars borin saman. Þar kemur í ljós að þrír umsækj­endur sem lentu neðar en Eiríkur í heild­ar­hæfn­is­mati dóm­nefndar voru með minni dóm­ara­reynslu en hann, en röt­uðu samt sem áður inn á lista Sigríðar yfir þá sem hún vill skipa í dóm­ara­sætin 15.

Í umsögn sem hæsta­rétt­ar­lög­maður sendi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í gær vegna máls­ins, og Kjarninn hefur undir höndum, segir að hann hafi fengið áfall við að lesa rök­stuðn­ing ráð­herr­ans fyrir breyttri röðun umsækj­enda. Þar segir enn fremur: „Þau upp­fylla engar lág­marks­kröfur stjórn­sýslu um rök­stuðn­ing og stand­ast auk þess enga efn­is­lega skoðun. [...]Engin rök eru færð fram fyrir því að velja þá 15 sem hún leggur nú til við Alþingi[...]Þegar svona for­kast­an­leg vinnu­brögð sjást þá leita menn ann­arra skýr­inga. Lét dóm­ari stjórn­mála­skoð­anir (for­tíðar) ráða þegar til­teknir umsækj­endur voru látnir gossa út af dóm­nefnd­ar­list­anum? Urðu vina- og póli­tísk tengsl til þess að aðrir voru teknir inn í þeirra stað o.s.frv. Svona hugs­anir vill maður ekki þurfa að hlusta á í eigin höfði en það er því miður óhjá­kvæmi­legt. Alþingi er skylt að taka málið til gaum­gæfi­legrar skoð­unar og má ekki taka að sér hlut­verk stimp­ilpúða fyrir fram­kvæmda­valdið í þetta sinn. Það er allt of mikið í húfi!“

Þrír með lægri einkunn og minni dómarareynslu

Í skýrslu dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda koma fram upp­lýs­ingar þar sem reynsla af dóms­störfum umsækj­enda er borin saman. Þar er Eiríkur Jónsson, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands, settur í 18. sæti. Fyrir neðan hann, og þar af leið­andi með minni dóm­ara­reynslu, eru nokkrir umsækj­endur sem dóms­mála­ráð­herra vill skipa í Lands­rétt. Þeirra á meðal eru Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, Jóhannes Sig­urðs­son og Krist­björg Steph­en­sen, sem hefur enga dóm­ara­reynslu. Öll þrjú lentu einnig neðar í heild­ar­mati dóm­nefndar á umsækj­endum. Þar var Eiríkur í sjö­unda sæti, Krist­björg í því átt­unda, Jóhannes í því níunda og Oddný Mjöll í þrett­ánda sæti. Samt ákvað ráð­herra að skipa þau öll þrjú eftir að dóms­mála­ráð­herra ákvað að gefa dóm­ara­reynslu aukið vægi við skipan dóm­ara, og víkja þar með frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar.

Með ákvörðun sinni ákvað Sigríður að skipa ekki fjóra af þeim 15 sem dóm­nefnd hafði talið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Einn þeirra var Eiríkur, sem lenti líkt og áður sagði í sjö­unda sæti á lista dóm­nefndar yfir þá sem hún taldi hæf­asta til að sitja í rétt­inum. Jón Hösk­ulds­son, sem hefur ára­langa reynslu sem dóm­ari, lenti í 11. sæti á lista dóm­nefndar, en hlaut heldur ekki náð fyrir augum Sigríðar. Það gerðu heldur ekki Jóhannes Rúnar Jóhanns­son (12. sæti) eða Ástráður Har­alds­son (14. sæti).

Þess í stað bætti Sigríður fjórum inn á list­ann. Þar ber fyrst að nefna Ásmund Helgason, sem var númer 17 á lista dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda og í 13. sæti þegar sam­an­burður var gerður á umsækj­endum á grund­velli reynslu af dóms­störfum. Arn­fríður Ein­ars­dóttir var í 18. sæti á lista dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda en Sigríður gerði samt sem áður til­lögu um hana í eitt af emb­ætt­unum 15. Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, sam­flokks­manns Sigríðar og for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Ragn­heiður Braga­dóttir var líka valin af Sigríði þrátt fyrir að hafa lent í 23. sæti á hæf­is­lista dóm­nefndar. Bæði Ragn­heiður og Arn­fríður eru reynslu­miklir dóm­arar.

Sá síð­asti sem hlaut ekki náð fyrir augum dóm­nefndar en Sigríður ákvað að gera til­lögu um í Lands­rétt er Jón Finn­björns­son. Hann lenti í 30. sæti af 33 á hæf­is­lista dóm­nefndar. Hann hefur enga reynslu af lög­manns­störfum né stjórn­sýslu­störfum en hefur gegnt dóm­ara­störfum um ára­bil. Jón er eig­in­maður Erlu S. Árna­dóttur, eins eig­anda lög­manns­stof­unnar LEX. Sigríður Á. Andersen starf­aði sem hér­aðs­dóms­lög­maður hjá LEX frá 2007 til 2015, þegar hún tók sæti Péturs H. Blöndal á Alþingi við and­lát hans.

Fékk áfall þegar hann las rökstuðning ráðherra

Það er gríð­ar­legur titr­ingur í lög­manna­stétt­inni, í háskóla­sam­fé­lag­inu og hjá dóm­urum lands­ins vegna ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra um að víkja frá til­lögu dóm­nefndar um skipun dóm­ara í Lands­rétt. Sá titr­ingur birt­ist meðal ann­ars í umsögnum sem sendar hafa verið til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um málið.

Ein þeirra umsagna er frá Jóhann­esi Karli Sveins­syni, hæsta­rétt­ar­lög­manni með 24 ára starfs­reynslu innan rétt­ar­kerf­is­ins, sem unnið hefur mörg trún­að­ar­störf fyrir íslenska ríkið á und­an­förnum árum. Jóhannes Karl sat meðal ann­ars í samn­inga­nefnd íslenska rík­is­ins um Icesave-samn­ing­anna sem Lee C. Buchheit stýrði. Hann kom einnig að samn­ingum við erlenda kröfu­hafa föllnu bank­anna um end­ur­reisn íslenska banka­kerf­is­ins á árinu 2009 fyrir hönd íslenska rík­is­ins.

Umsögn Jóhann­esar Karls, sem er dag­sett 30. maí og Kjarninn hefur undir höndum, er afar harð­orð. Þar segir hann að til­laga dóms­mála­ráð­herra stefni í að verða dýr fyrir ríkið vegna mögu­legs bóta­réttar nokk­urra umsækj­enda en „ennþá fremur vegna þess að í upp­sigl­ingu er hneyksli sem á eftir að valda langvar­andi vanda­málum í rétt­ar­kerf­inu sjálfu“.

Jóhannes Karl segir í umsögn­inni að það sé „alþekkt að sumir ráða ekki við freist­ing­una að skipa vini sína, skoð­ana­bræður og systur eða jafn­vel ætt­ingja í emb­ætti. Þeir ganga fram­hjá þeim sem þeir telja með óheil­brigðar skoð­anir á þjóð­málum eða þeir telja sig eiga eftir að jafna ein­hverjar sakir við. Síðustu 10 árin hefur rétt­ar­kerfið glímt við afleið­ingar af skip­unum af þessum toga í emb­ætti dóm­ara. Van­traust og tor­tryggni gripu um sig eftir skip­anir í lok árs 2007 með dap­ur­legum afleið­ingum fyrir alla sem í hlut áttu“.

Alþingi á enn eftir að taka ákvörðun um hvort að farið verið eftir tillögu Sigríðar Á. Andersen.
Alþingi á enn eftir að taka ákvörðun um hvort að farið verið eftir til­lögu Sigríðar Á. Andersen.

Það hafi því verið mikið fagn­að­ar­efni þegar ráð­ist var í end­ur­bætur á dóm­stóla­skipan, meðal ann­ars með stofnun Lands­réttar. Jóhannes Karl segir það líka hafa verið gleði­legt hversu margir hæfir umsækj­endur sóttu um þau 15 störf sem aug­lýst voru. „Það er því ein­stak­lega sorg­legt að við skipun fyrstu dóm­ara þess réttar hafi verið farið niður á það plan sem end­ur­vekur tor­tryggni og van­traust“.

Hann segir það ekki algjör­lega bannað að víkja í veru­legum mæli frá nið­ur­stöðum dóm­nefndar, líkt og Sigríður Á. Andersen ákvað að gera. Það sé þó lág­marks­krafa að fyrir því séu færð fram­bæri­leg rök sem dugi til að sann­færa Alþingi og aðra um að nefndin hafi kom­ist að rangri nið­ur­stöðu. „Með þetta í huga las ég rök­stuðn­ing ráð­herra fyrir breyttri röðun. Eins og fleiri fékk ég áfall við að lesa þau skrif. Þau upp­fylla engar lág­marks­kröfur stjórn­sýslu um rök­stuðn­ing og stand­ast auk þess enga efn­is­lega skoðun. Ráðherra virð­ist bara segja að hún telji að dóm­ara­reynsla eigi að hafa meira vægi en nefndin ákvað og að því sögðu eru ein­hverjir 24 ónefndir umsækj­endur á sama báti. Engin rök eru færð fram fyrir því að velja þá 15 sem hún leggur nú til við Alþingi.“

Jóhannes Karl segir að vanda­málið við rök­semdir Sigríðar séu að hróker­ingar ráð­herr­ans geti alls ekki byggt á þessum for­sendum. Þannig hafi umsækj­anda sem met­inn var númer sjö í mati hæfinefndar, Eiríki Jónssyni, til dæmis verið hent út úr hópi kandídata en aðrir með minni dóm­ara­reynslu látnir í friði. Dóm­nefndin sé því virt að vettugi og allar almennar stjórn­sýslu­reglur látnar lönd og leið. Þá hafi svör Sigríðar í fjöl­miðlum ekki vakið traust.

Vina- og pólitísk tengsl?

Dóm­nefndin hafði lagt til að skip­aðir yrðu tíu karlar og fimm konur í Lands­rétt. Í breyttri röðun dóms­mála­ráð­herra eru karl­arnir átta en kon­urnar sjö. Jóhannes Karl bendir í umsögn sinni á að ráð­herra hafi ekki minnst einu orði í rök­stuðn­ingi sínum á að jafna hafi þurft kynja­hlut­föll á meðal dóm­ara. Því þurfi ekki að velta því frekar fyrir sér í mál­inu, enda aug­ljós­lega ekki rök­stuðn­ingur fyrir breyttri röðun.

Síðan segir í umsögn­inni: „Þegar svona for­kast­an­leg vinnu­brögð sjást þá leita menn ann­arra skýr­inga. Lét dóm­ari stjórn­mála­skoð­anir (for­tíðar) ráða þegar til­teknir umsækj­endur voru látnir gossa út af dóm­nefnd­ar­list­anum? Urðu vina- og póli­tísk tengsl til þess að aðrir voru teknir inn í þeirra stað o.s.frv. Svona hugs­anir vill maður ekki þurfa að hlusta á í eigin höfði en það er því miður óhjá­kvæmi­legt. Alþingi er skylt að taka málið til gaum­gæfi­legrar skoð­unar og má ekki taka að sér hlut­verk stimp­ilpúða fyrir fram­kvæmda­valdið í þetta sinn. Það er allt of mikið í húfi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár