Tívolí fær leyfi til að hækka um fimm desibil í „græjunum“

Undan­farið hefur talsvert verið um það deilt hvort tónlistar­fólk sem skemmtir á útitónleikum í Tívolí í Kaupmanna­höfn megi auka styrkinn í hátölurunum úr 60 desibilum í 65. „Algjör nauðsyn,“ segir tónlistar­fólkið, „60 desibil er meira en nóg,“ segja nágrannar skemmtigarðsins sem segja leirtauið í eldhúsinu glamra á hverju föstudags­kvöldi.

Allir sem hafa komið í Tívolí í Kaupmanna­höfn (það gerðu 4,5 milljónir í fyrra) vita að þar er iðulega mikill kliður og jafnvel hávaði. Kven­þjóðin lætur vel í sér heyra þegar rússí­baninn tekur dýfurnar, karlkyns ofur­hugarnir kalla slík andköf píku­skræki og bretta sjálfir niður ermarnar til að fela gæsa­húðina. Þetta eru þó smámunir miðað við flugelda­sýningarnar á laugardags­kvöldum, nánar tiltekið þegar klukkuna vantar stundar­fjórðung í miðnætti. Þá þýðir lítið fyrir nágranna skemmtigarðsins að reyna að halda uppi samræðum, nema þeir séu því slyngari í vara­lestri. Flugelda­skothríðin stendur yfir í um það bil fimmtán mínútur. Sagan endurtekur sig viku síðar og þannig gengur það allt sumarið, öll laugardags­kvöld.

Föstudagstónleikarnir


Fyrir átján árum, árið 1997, datt ein­hverjum í stjórn Tívolís í hug að upp­lagt væri að efna til föstu­dags­tón­leika á stóra opna svæð­inu, Plænen, skammt innan við aðal­inn­gang­inn á Vester­brogade. Þar yrði boðið uppá fjöl­breytta tón­list, einkum danska en líka erlenda, af létt­ara tag­inu enda fylgdi upp­á­stung­unni að þetta skyldi kallað „fredagsrock.“

Skemmst er frá því að segja að stjórn skemmtigarðsins þótti hugmyndin frábær og lét ekki sitja við orðin tóm. Þessir tónleikar, sem í langflestum tilvikum eru inni­faldir í aðgangs­eyrinum að Tívolí, hafa notið sívaxandi vinsælda og í sumar verða föstudags­tónleikarnir samtals 24 talsins. Þeir byrja klukkan tíu að kvöldi og standa í klukku­tíma eða svo.

Auk þess eru stundum, fyrir utan föstudags­kvöldin, tónleikar á Plænen sem sérstak­lega er selt inn á. Meðal þeirra sem halda slíka tónleika í sumar má nefna Mark Knopfler og Elton John. Þeir sem ekki kaupa miða á slíka tónleika geta séð í nokkurri fjarlægð frá sjálfu sviðinu á stórum skermum það sem fram fer. Og heyrt.

Dönsku Olsen-bræðurnir, sem sigruðu Eurovision söngva­keppnina árið 2000, eru á meðal þeirra sem hafa troðið upp í Tívolí. Mynd: EPA

Hvað er hæfilega hátt?


Það er þetta, að heyra, sem valdið hefur deilum. Þegar aðsóknin að tón­leik­unum er orðin jafn mikil og raun ber vitni (500 þús­und í fyrra) gefur auga leið að ekki geta allir verið nálægt svið­inu. Þetta hefur orðið til þess að margir, þar á meðal lista­menn­irnir, hafa kvartað sáran yfir að mega ekki skrúfa upp í „græj­unum.“

Dönsku Olsen-bræðurnir, sem sigruðu Eurovision söngvakeppnina árið 2000, eru á meðal þeirra sem hafa troðið upp í Tívolí. Mynd: EPA
Dönsku Olsen-bræð­urnir, sem sigr­uðu Eurovision söngvakeppn­ina árið 2000, eru á meðal þeirra sem hafa troðið upp í Tívolí. Mynd: EPA

Stjórn­endur Tívolís hafa tekið undir þetta og óskuðu eftir leyfi borgar­stjórnarinnar til að auka hljóð­styrkinn um 5 desibil, úr 60 desibilum í 65. Mælingin fer fram eftir sérstökum reglum, desibilafjöldinn miðast við ákveðna fjarlægð frá sviðinu. Borgar­stjórn tók vel í erindið en lögum samkvæmt skal leitað umsagnar nágranna í tilvikum sem þessum.

Nágrannar ósáttir


Nágrönnum var ekki skemmt yfir þessum hug­myndum. Bentu á að flug­elda­sýn­ing­arnar á laug­ar­dags­kvöldum og svo föstu­dags­rokkið valdi miklu ónæði. Ekki sé þá við­lit að tala saman eða fylgj­ast með útvarpi og sjón­varpi.

Maður sem býr í næsta nágrenni bauð borgar­stjóranum að koma í heimsókn eitt föstudags­kvöldið „þar getum við þagað saman meðan tónleikarnir standa yfir,“ stóð í boðs­bréfinu. Borgar­stjórinn þáði ekki boðið.

Bentu á aðra möguleika


Nágrannar skemmti­garðs­ins hafa bent á ýmsa mögu­leika varð­andi opna svæðið. Einn er sá að breyta Plænen í eins konar skál. Þannig yrði sviðið og áhorf­enda­svæðið neðar og það myndi, að mati nágrann­anna, draga úr hávað­anum í kringum Tívolí. Önnur hug­mynd er sú að færa sviðið í hinn end­ann á Plænen, þá myndi hljóðið ber­ast meira um Tívolí svæðið sjálft.

Hvorug hugmyndin kemur til greina að mati stjórnar skemmtigarðsins. Stjórnin segist hinsvegar skilja sjónarmið nágrannanna, augljóst sé að frá svæði eins og Tívolí berist hávaði en benda jafnframt á að þar sé öllum reglum fylgt.

Fá leyfi til að hækka en líka skipun um að lækka


Þrátt fyrir mót­mæli nágrann­anna fékk Tívolí leyfi til að auka hljóð­styrk­inn um 5 desi­bil. Þetta leyfi gildir þó aðeins um tíu tón­leika af þeim sem ráð­gerðir eru á Plænen í sumar, fyrir hina gildir áfram 60 desi­bila reglan.

Á móti hefur stjórn Tívolís skuld­bundið sig til að draga aðeins úr rakettu­skot­hríðinni. Nágrannarnir eru ekki ánægðir með þessi málalok en geta fátt gert. Sá sem boðið hafði borgar­stjóranum í heimsókn sagði í viðtali við danskt dagblað að „það kæmi sér vel að eyrna­tappar væru á hóflegu verði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár