Halla Gunnarsdóttir ráðin ráðgjafi forsætisráðherra

Halla Gunn­ars­dóttir hefur verið ráðin ráð­gjafi Katrínar Jak­obs­dóttur en hún hefur þegar hafið störf.

Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunn­ars­dóttir Mynd: Forsætisráðuneytið

Halla Gunn­ars­dóttir hefur verið ráðin ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Hún hóf störf þann 1. mars síð­ast­lið­inn og mun hafa aðsetur í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Samkvæmt frétt­inni mun Halla leiða starf stýri­hóps um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Meg­in­hlut­verk hóps­ins er að beita sér fyrir fram­sæknum og sam­hæfðum aðgerðum stjórn­valda gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í bar­átt­unni gegn hvers kyns kyn­bundnu ofbeldi.

„Halla hefur víð­tæka reynslu af mann­rétt­inda­málum og bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi og áreitni. Hún starf­aði áður sem skrif­stofu­stjóri hjá breska Kvenna­list­anum (The Women’s Equality Party) þar sem hún leiddi stefnu­mótun sam­tak­anna. Þá starf­aði Halla á alþjóð­legri lög­manns­stofu í Lundúnum, McAllister-Oli­varius, sem sér­hæfir sig í málum sem lúta að kyn­bund­inni áreitni á vinnu­stöðum, innan mennta­stofn­ana og á inter­net­inu.

Á árunum 2009 til 2013 var Halla aðstoð­ar­maður Ögmundar Jón­as­sonar, inn­an­rík­is­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra, þar sem hún leiddi meðal ann­ars sam­ráð um með­ferð nauðg­un­ar­mála og hafði frum­kvæði að vit­und­ar­vakn­ingu um kyn­ferð­is­legt, and­legt og lík­am­legt ofbeldi gegn börnum sem var skipu­lögð í sam­starfi vel­ferð­ar­ráðu­neytis, inn­an­rík­is­ráðu­neytis og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis,“ segir í frétt­inni.

Jafn­framt kemur fram að Halla sé fyrrum blaða­maður og hafi verið virk í bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi um langa hríð, þar á meðal á vett­vangi Femínista­fé­lags Íslands.

Eins og Kjarninn hefur fjallað um þá hafa aldrei fyrr verið jafn margir aðstoð­ar­menn eins og hjá núver­andi rík­is­stjórn. Aðeins Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra er með einn aðstoð­ar­mann en allir hinir ráð­herr­arnir eru með tvo, eins og þeir hafa leyfi til.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er Halla ekki ráðin inn í ráðu­neytið sem aðstoð­ar­maður heldur ráð­gjafi. Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf krefur. Hún hefur nú þegar ráðið sér tvo slíka, ann­ars vegar Láru Björg Björns­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar og hins vegar Unni Brá Kon­ráðs­dóttur sem mun leiða vinnu rík­is­stjórn­ar­innar um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár