Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðstoðarmenn ráðherra hafa aldrei verið fleiri... og aldrei kostað meira

Alls hafa verið ráðnir 22 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar. Enn er svig­rúm til að ráða þrjá í við­bót. Kostn­aður við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar mun að öllum lík­indum verða mun hærri en heim­ild á fjár­lögum gerir ráð fyrir.

Rík­is­stjórn sem í sitja ell­efu ráð­herrar má ráða sér 25 aðstoð­ar­menn. Sú sem nú situr að völdum, og hefur gert í um tvo mán­uði, hefur þegar ráðið 22 slíka til starfa. Það er mesti fjöldi aðstoð­ar­manna sem ráðin hefur verið. Einungis tveir ráð­herrar eru með einn aðstoð­ar­mann í stað tveggja og ein staða aðstoð­ar­manns rík­is­stjórnar er ómönnuð.

Rekstur rík­is­stjórn­ar­innar hefur enda aldrei kostað meira en áætlað er að hann kosti í ár. Undir þann mála­flokk falla laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra. Kostn­að­ur­inn hefur auk­ist um 208 millj­ónir króna frá árinu 2012 og áætlað er, sam­kvæmt sam­þykktum fjár­lögum, að hann verði 461 milljón króna á árinu 2018. Sú fjár­heim­ild dugar lík­ast til ekki til að greiða laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra í ár. Sam­an­lagt er kostn­aður vegna þeirra um 560 millj­ónir króna á árs­grund­velli, eða um 100 millj­ónum krónum hærri en fjár­lög gera ráð fyrir.

Ráðherrum fjölgað á undanförnum árum

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf krefur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“ Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir ell­efu. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

Aðstoðarmannakvótinn nánast fullnýttur

Níu ráð­herrar eru nú með tvo aðstoð­ar­menn. Einu tveir sem eru bara með einn eru Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Til við­bótar við þá aðstoð­ar­menn sem ráð­herra geta valið sér beint þá hefur rík­is­stjórnin ráðið tvo af þeim þremur aðstoð­ar­mönnum sem hún má ráða sam­kvæmt lögum. Annar þeirra er Lára Björg Björns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sem hefur starfs­að­stöðu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Hinn er Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, sem var ráð­inn í stöðu aðstoð­ar­manns til að sinna starfi sem verk­efn­is­stjóri við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Unnur starfar í umboði Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Þegar til­kynnt var um ráðn­ingu Unnar, sem er fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og var for­seti Alþingis á síð­asta kjör­tíma­bili, var haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að hún muni stýra verk­efn­inu „næstu árin“. Því er ljóst að um lang­tíma­starf er að ræða.

Fjárheimild dugar ekki fyrir laununum

Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Bara launa­kostn­aður vegna aðstoð­ar­manna rík­is­stjórn­ar­innar er því 26,4 millj­ónir króna á mán­uði sem stendur, eða 316,8 millj­ónir króna á ári.

Ráð­herrar hafa líka fengið umtals­verða launa­hækkun á und­an­förnum árum. Í nóv­em­ber 2015 hækk­aði Kjara­ráð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­sent. Árið síð­ar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun for­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði. Bara launa­kostn­aður rík­is­stjórn­ar­innar er því um 20,3 millj­ónir króna á mán­uði, eða 243,3 millj­ónir króna á mán­uði.

Samkvæmt þessu er kostn­aður rík­is­ins vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, 560,1 milljón króna á ári. Sú fjár­heim­ild sem er til staðar vegna rekst­urs rík­is­stjórn­ar­innar í fjár­lögum mun því að öllum lík­indum ekki duga fyrir greiðslu launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra á árinu 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár