Helmingur landsmanna andvígur því að þriðji orkupakkinn taki gildi

Innan við þriðjungur ríkis­stjórnar­flokkanna lýsir yfir stuðningi við innleiðingu þriðja orku­pakkans. Þetta kemur fram í nýrri MMR könnun.

Evrópu­sinnar eru hvað hlynntastir innleiðingu þriðja orkupakka ESB á Íslandi en nokkurn stuðning er að finna á meðal stuðnings­fólks Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata. Innan við þriðjungur ríkis­stjórnar­flokkanna lýsir yfir stuðningi við innleiðingu orku­pakkans en mestrar andstöðu gætir á meðal stuðnings­fólks Miðflokksins og Flokks fólksins. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 30. apríl til 3. maí.

Af þeim svarendum sem tóku afstöðu til könnunarinnar sögðust 34 prósent mjög andvíg því að þriðji orkupakki ESB taki gildi á Íslandi, 16 prósent kváðust frekar andvíg, 19 prósent bæði og, 17 prósent frekar fylgjandi og 13 prósent mjög fylgjandi.

28,5 prósent þátt­takenda í könnuninni tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.

Andstaðan eykst með auknum aldri

Karlar reyndust jákvæðari gagnvart innleiðingu þriðja orku­pakkans en 36 prósent þeirra kváðust frekar eða mjög fylgjandi, saman­borið við 24 prósent kvenna. Andstaða við innleiðingu orku­pakkans jókst með auknum aldri en 38 prósent svarenda 50 ára og eldri kváðust mjög andvíg slíkri innleiðingu, saman­borið við 32 prósent svarenda 30 til 49 ára og 29 prósent þeirra í yngsta aldurs­hópi, 18 til 29 ára. Þá voru svarendur í yngsta aldurs­hópi, eða 26 prósent, og þeir á aldrinum 30 til 49 ára, eða 21 prósent, líklegri til að segjast bæði jákvæðir og neikvæðir mjög slæma heldur en svarendur 50 til 67 ára, eða 16 prósent, og þeir 68 ára og eldri, eða 13 prósent.

Nokkur munur reyndist á svörun eftir búsetu en íbúar höfuð­borgar­svæðisins voru líklegri til að segjast fylgjandi innleiðingu þriðja orku­pakkans, eða 37 prósent, heldur en íbúar af lands­byggðinni, eða 19 prósent. Lands­byggðar­búar voru hins vegar líklegri til að segjast andvíg orku­pakkanum, eða 63 prósent, heldur en þau af höfuð­borgar­svæðinu, eða 43 prósent, en 49 prósent lands­byggðarbúa kváðust mjög andvíg.

Andstaða meiri á meðal stuðningsfólks Framsóknar

Stuðningur við þriðja orku­pakkann virðist, samkvæmt MMR, almennt ekki hafa vera mikill hjá stuðnings­fólki ríkis­stjórnar­flokkanna. Mestur var stuðningurinn hjá stuðnings­fólki Sjálfstæðis­flokks en þó voru færri þeirra sem kváðust fylgjandi, eða 28 prósent, innleiðingu orku­pakkans heldur en andvíg, eða 44 prósent. Andstaða reyndist meiri á meðal stuðnings­fólks Fram­sóknar, eða 56 prósent, og Vinstri grænna, eða 55 prósent, en rúmlega þriðjungur stuðnings­fólks Framsóknar­flokksins, eða 35 prósent, kvaðst mjög andvígur.

Af stjórnar­andstæðu­flokkunum reyndist stuðnings­fólk Miðflokksins að öllu leiti andvígt þriðja orku­pakkanum en 93 prósent þeirra kváðust mjög andvíg. Meiri stuðning var hins vegar að finna á meðal stuðnings­fólks Samfylkingarinnar (68 prósent fylgjandi), Viðreisnar (62 prósent fylgjandi) og Pírata (44 prósent fylgjandi) en nær helmingur stuðnings­fólks Viðreisnar (47 prósent) kvaðst mjög fylgjandi innleiðingu þriðja orkupakka ESB.

Ef litið er til ríkis­stjórnar­flokkanna sem heildar má sjá að tæplega helmingur stuðnings­manna flokkanna þriggja, eða 49 prósent, kvaðst andvígur innleiðingu þriðja orku­pakkans en 27 prósent fylgjandi. Stuðnings­fólk Flokks fólksins og Miðflokksins reyndist að mestu andvígt orku­pakkanum, eða 98 prósent en 91 prósent þeirra kváðust mjög andvíg. Stuðnings­fólk hinna þriggja stjórnar­andstöðu­flokkanna (Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar) reyndist hins vegar nokkuð samstíga í stuðningi sínum við þriðja orku­pakkann og kváðust 59 prósent þeirra fylgjandi innleiðingu hans en 29 prósent kváðust frekar fylgjandi og 31 prósent mjög fylgjandi.

Þeir sem eru hlynntir inngöngu í ESB líklegri til að segjast fylgjandi

Ef litið er til afstöðu svarenda til ríkis­stjórnarinnar má sjá að þau sem kváðust ekki styðja ríkis­stjórnina voru líklegri til að segjast andvíg orku­pakkanum, eða 54 prósent, heldur en þau sem sögðust styðja ríkis­stjórnina, eða 43 prósent. Þau sem kváðust styðja ríkis­stjórnina reyndust hins vegar líklegri til að segjast bæði andvíg og fylgjandi, eða 26 prósent, innleiðingu orku­pakkans heldur en þau sem kváðust ekki styðja ríkis­stjórnina, eða 14 prósent.

Þá reyndust þeir svarendur sem kváðust hlynntir inngöngu í Evrópu­sambandið líklegri til að segjast fylgjandi innleiðingu orku­pakkans, eða 64 prósent, heldur en þau sem kváðust andvíg inngöngu í ESB, eða 11 prósent. Svarendur andvígir inngöngu í ESB reyndust hins vegar líklegri til að vera andvíg orku­pakkanum, eða 75 prósent, heldur en þau sem kváðust hlynnt inngöngu Íslands í ESB, eða 19 prósent.

Einstaklingar 18 ára og eldri voru valdir handahófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. 941 einstaklingur svaraði könnuninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár