Katrín og Sigurður Ingi einu formennirnir sem fleiri treysta en vantreysta

Meira en helmingur lands­manna bera lítið traust til Bjarna Benedikts­sonar. 72% kjósenda Sjálfstæðis­flokksins treysta Katrínu Jakobdsóttur, formanni Vinstri grænna.

Við myndun ríkisstjórnar
Við myndun rík­is­stjórnar Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna voru kátir við myndun stjórn­ar­innar fyrir fjórum árum. Vinstri græn hafa misst mest fylgi frá þeim tíma miðað við kann­anir, en Katrín Jak­obs­dóttir gnæfir yfir aðra í trausti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Aðeins tveir flokks­formenn á Alþingi eru í þeirri stöðu að fleiri treysta þeim mikið en lítið. Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra og formaður Vinstri grænna, nýtur frekar eða mjög mikils trausts 55% kjósenda, samkvæmt nýrri könnun MMR, og hefur það aukist úr 48% trausti í nóvember í fyrra. Hún hefur aldrei notið meira trausts í könnunum MMR sem teygja sig aftur til apríl 2019. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, tekur sömuleiðis stökk í trausti. 38% kjósenda treysta honum frekar eða mjög mikið, miðað við 31% í fyrra. 

Bjarna vantreyst

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins og fjármála­ráðherra, nýtur minna trausts en hinir formenn ríkis­stjórnar­flokkanna. Það sést á því að 29% segjast treysta honum frekar eða mjög mikið, miðað við 25% árið áður. Hins vegar segist meirihlutinn, 56%, treysta honum frekar eða mjög lítið, sem er aukning úr 51% í fyrra. Þróun vantrausts gagnvart Sigurði Inga og Katrínu er öfug á við Bjarna, nú vantreysta 27% Sigurði Inga, en þau voru 33% í fyrra. Sömuleiðis vantreysta 23% Katrínu en 28% gerðu það síðast.

Sigmundur á botninum og Logi fellur

Færri treysta Loga Einars­syni, formanni Samfylkingarinnar, eða 17% miðað við 24% í fyrra. Samhliða eykst vantraust á honum úr 40% í 50% og er hann því í sambærilegri stöðu og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokks.

Lang­minnst traust mælist til Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, formanns Miðflokksins, af þeim sem sitja á Alþingi. 76% lands­manna vantreysta honum, en aðeins 7,7% treysta honum.

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmda­stjórnar Sósíalista­flokks Íslands, nýtur svipaðs trausts og Sigmundur, eða 7,8%, þótt færri vantreysti honum, eða 63,2%. 

Könnun MMRAðeins tveir flokks­leið­togar njóta meira trausts en van­trausts.

Katrínu treyst þvert á flokka

Traust gagnvart Katrínu Jakobs­dóttur er þvert á flokka, þótt það eigi síst við um Flokk fólksins, Miðflokkinn og Sósíalista­flokkinn. Athygli vekur að 72% Sjálfstæðis­manna treysta Katrínu frekar eða mjög mikið, en 83% þeirra treysta formanninum Bjarna Benedikts­syni. Sömuleiðis treysta 71% kjósenda Viðreisnar Katrínu, 64% Fram­sóknarfólks og tæpur helmingur Samfylkingar­fólks og Pírata. 

Sigurður Ingi Jóhannsson nýtur trausts 54% Sjálfstæðis­manna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Smári Egilsson, Inga Sæland og Logi Már Einarsson njóta lítils trausts utan sinna kjósenda, og svipað gildir um Þorgerði Katrínu Gunnars­dóttur, formann Viðreisnar, sem nær ekki meira en 24% trausti utan kjósenda Viðreisnar.

Í sams konar könnun árið 2016 naut Katrín trausts 59% lands­manna en var vantreyst af 21% þeirra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var þá forsætis­ráðherra með traust 10% lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár