Fjárfestar hafa áhyggjur af því að Apple hafi staðið sig of vel

Tekjur tækni­risans Apple á síðasta ársfjórðungi 2014, slógu öll met. Fyrir­tækið rakaði saman rúmum átján milljörðum bandaríkja­dölum í hagnað á tíma­bilinu, af tæplega 75 milljarða dala tekjum Apple. Hagnaðurinn var sá mesti sem nokkurt fyrirtæki hefur skilað í sögunni. Eins og kunnugt er er sala í jóla­mánuðinum inn í uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung, en vörur Apple seldust ævnitýralega í desember.

Tekjur Apple á fjórða ársfjórðungi voru hærri en tekjur Google yfir allt árið 2014, og meira en það því tekjur Apple síðustu þrjá mánuði ársins voru meiri en Amazon, Google og Microsoft öfluðu á heilu ári.

Þrátt fyrir þessa frábæru frammistöðu Apple, telja margir fjár­festar og greiningar­aðilar að tækni­risinn sé í raun í ákveðnum vanda. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Flestir eru á þeirri skoðun að Apple hafi staðið sig of vel á fjórða ársfjórðungi og fyrir­tækið muni aldrei toppa niður­stöðu ársfjórðungsins. Enda þegar öllu er á botninn hvolft þá eru tekjur upp á tæpa 75 milljarða bandaríkja­dali mikill peningur, og ljóst að það verður erfitt fyrir Apple að bæta þá niður­stöðu á næsta ári.

Því skal þó ekki gleyma að Apple hefur ítrekað farið fram úr væntingum efasemda­manna, enda tækni­risinn verð­mætasta fyrirtæki heims.

Þá má færa rök fyrir því að Apple sé verðlagt sé of lágt, að minnsta kosti miðað við Google. Sér í lagi þar sem vöxtur Apple er hraðari en Google, sölutölur Apple hækkuðu um 30 prósent á síðasta ársfjórðungi á meðan tekjur Google jukust aðeins um 15 prósent á tíma­bilinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár