Drukkna á flótta

Talið er að fjórfalt fleiri hafi dáið á ferð sinni yfir Miðjarðarhaf á leið til Evrópu það sem af er þessu ári saman­borið við allt árið 2013. Óttast er að margir þeirra tvö hundruð þúsund flótta­manna sem hafast nú við í Norður-Líbíu muni grípa til sömu örþrifa­ráða og reyna að komast yfir hafið, þá helst til Ítalíu. Þar af er talið að sjö þúsund manns leiti nú ljósum logum að neyðar­útgangi frá Líbíu vegna átakanna þar, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða­samtökum um fólks­flutninga (IOM).

Í október í fyrra drukknuðu fleiri en 360 skammt frá eynni Lampedusa við Ítalíu. Í kjölfarið kynntu ítölsk stjórn­völd nýja aðgerða­áætlun fyrir strand­gæsluna, Mare Nostrum, sem Evrópu­sambandið styrkir fjárhags­lega.

Síðan þá hefur ítalska strand­gæslan lagt kapp á að komið verði til móts við flótta­fólk áður en slys verða og það flutt um borð í örugg skip. Dæmi eru um að strand­gæslan hafi tekið við fimm þúsund manns með þessum hætti á innan við viku. Það sem af er þessu ári hefur strand­gæslan tekið á móti rúmlega sextíu þúsund sjóferða­löngum, sem margir voru um borð í skipum um það bil að sökkva. Sumir hafa reynt að komast yfir á ofhlöðnum gúmmí­bátum.

Þrátt fyrir að ítalska strand­gæslan hafi nú þegar komið í veg fyrir mörg slys telur IOM að strand­gæslan hafi aðeins tekið á móti helmingi þeirra sem hafi lagt leið sína yfir til Ítalíu sjóleiðis. Stjórn­völd á Möltu óttast að einhver þeirra hundruða líka sem eru nú í sjónum séu smituð ebólu­veirunni. Þetta hefur torveldað leitar- og björgunar­starfi. Tryggja þarf að starfs­menn fái viðeigandi þjálfun og búnað til að draga úr líkum á að þeir smitist.

Glæpamenn hagnast


Sjöfalt fleiri reyndu að kom­ast ólög­lega yfir til Ítalíu fyrsta árs­fjórð­ung þessa árs miðað við sama tíma­bil í fyrra sam­kvæmt skýrslu landamæra­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, Frontex. Þetta megi að stórum hluta rekja til þess að glæpa­hringir hagn­ist á örbirgð og ótta flótta­fólks. Þessir hópar skipu­leggi ferðir yfir Mið­jarð­ar­haf gegn greiðslu. Því fleiri sem kom­ist um borð í hvern bát, því meira fé fái eig­end­urnir. Far­þeg­arnir séu flestir grun­lausir um áhætt­una sem fylgi þessum sjó­ferðum.

Samkvæmt Frontex eru flestir flótta­mennirnir auk þess upp til hópa skilríkis- og land­lausir og hafi þar af leiðandi fáa valkosti. Fjöldi Sýrlendinga hafi til að mynda flúið gagngert til Líbíu til að nýta sér sjóleiðina til Evrópu. Talið er að sumir smygl­aranna sökkvi bátunum viljandi til að fela slóð sína.

Forza Italia, stjórn­málaflokkur Silvios Berlusconis, er meðal þeirra sem hefur gagnrýnt ríkis­stjórn Ítalíu fyrir að halda úti Mare Nostrum áætluninni. Verkefnið hafi þveröfug áhrif því hún laði að sér flótta­fólk þegar strand­gæslan sjái um að koma því yfir til Sikil­eyjar heilu á höldnu. Hún hafi því aðeins auka­kostnað í för með sér fyrir Ítalíu, sem borgi um tvo milljarða króna á mánuði til að reka Mare Nostrum.

Algjört stjórnleysi í Líbíu


Flótta­menn frá Egypta­landi, Sýrlandi, Sómalíu, Erítreu, Súdan og hinum ýmsu Vestur- og Mið-Afr­íku­ríkjum haf­ast við í Norður-Líbíu. Þeir eru í sér­stökum áhættu­hópi vegna harðn­andi átaka sem eru þau verstu frá því Muammar Gaddafi, ein­ræð­is­herra, var steypt af stóli árið 2011. Þar berj­ast nú þeir sömu hópar og komu Gaddafi frá inn­byrðis um völd.

Uppreisnar­menn frá borginni Mistrata tóku öll völd í höfuð­borginni Trípóli og hafa sett á fót sína eigin ríkis­stjórn. Þing og ríkis­stjórn Líbíu hefur leitað skjóls í borginni Tobruk í austri. Í ágústlok brutust svo út blóðug átök milli róttækra hreyfinga Íslamista og skæruliða sem voru hlið­hollir Gaddafi, en segjast nú berjast með ríkis­stjórn Líbíu, í Benghazi. Því ríkir algjört neyðar­ástand í landinu sem óttast er að muni versna mjög hratt á næstu vikum.

Hjálpar­starfsmenn á vegum IOM hafa unnið að því að koma flótta­fólki í skjól og hefur mörgum verið vísað til nágranna­ríkisins Túnis.

„Ef við hjálpum ekki þeim sem vilja snúa heim til sín örugglega gætu margir hætt á að fara um borð í ótrygga báta í þeirri von að komast í öruggt skjól á Ítalíu,“ segir Othman Belbeisi, yfirmaður IOM í Líbíu.

Talið er að smyglarar leiti uppi menntaðar fjöl­skyldur sem hafi einhvern gjaldeyri eða verðmæti til að greiða fargjaldið. Tímaritið Intelligent Life greindi í sumar frá dæmi um sýrlenska fjöl­skyldu sem greiddi 100 þúsund krónur á mann fyrir farið. Hún gat ekki greitt gjaldið fyrir alla og því varð elsti sonurinn eftir í Líbíu.

Dauðaferð yfir Miðjarðar­hafið

Flestir þeirra báta sem eru gerðir út frá Líbíu eru á mörkum þess að teljast sjóhæfir. Eigendurnir senda flótta­fólk út í opinn dauðann gegn hárri greiðslu. Hér eru nokkur dæmi um alvarleg sjóslys:

27 mars 2009


Gamall fiski­bátur með 250 menn inn­an­borðs sekkur skammt frá Líbíu. Bjargað var 21 manni. Tveir aðrir bátar týnd­ust á sömu leið og ekki vitað um afdrif þeirra.

6 apríl 2011


Talið er að 150 manns hafi látið lífið þegar bátur sökk nærri Lampedusa á leið frá Líbíu. Ítalska strand­gæslan fann aðeins 20 lík.

3 október 2013


Bátur sekkur skammt frá eynni Lampedusa út frá Ítalíu. 155 flóta­mönnum er bjargað úr sjónum en að minnsta kosti 360 fór­ust, flestir frá Eritreu, Sómalíu og Gana.

11 október 2013


Bátur með fleiri en 200 flótta­mönnum frá Sýrlandi og Palest­ínu sekkur. 35 drukkna að minnsta kosti. Farið er með lif­endur til Möltu og Ítalíu.

30 apríl 2014


Fjörutíu manns, flestir frá Sómalíu, drukkna skammt frá höf­uð­borg Líbíu, Trípóli. Einn maður kemst lífst af.

6 maí 2014


Talið er að 77 hafi drukknað skammt frá strönd Líbíu eftir að bátur sökk eftir um þrjá­tíu mín­útna sigl­ingu. Líbíska strand­gæslan náði að bjarga 53 úr sjónum.

22 agúst 2014


Óttast er að allt að 250 hafi farist þegar bátur sökk innan land­helgi Líbíu á leið til Ítalíu. Líbíska strand­gæslan fann ekki lík flestra far­þeg­anna en tókst að bjarga lífi sextán manna.

24 ágúst 2014


Að minnsta kosti 25 láta lífið í tveimur sjó­slysum. Ítalska strand­gæslan bjargar um 370 manns sem höfðu verið um borð í öðru skip­anna.

7-14 september 2014


Talið er að smygl­arar hafi sökkt vilj­andi bát með 500 flótta­mönnum inn­an­borðs skammt frá Möltu. Óljóst er hvenær atburð­ur­inn átti sér stað en lög­reglan á Ítalíu og Möltu rann­saka hann sem fjöldamorð.

14 september 2014


Bátur sekkur austur af Trípólí. Að minnsta kosti 250 eru taldir af en 36 far­þegum var bjargað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár