Verið að rýma hluta Kastrup

Verið er að rýma hluta flug­stöðvarinnar á Kastrup flugvelli í Kaupmanna­höfn. Þetta kemur fram í Twitter-færslu lögreglunnar í Kaupmanna­höfn nú fyrir skömmu. Ástæðan er grun­samleg taska. Danska ríkis­útvarpið DR greinir frá málinu, og hefur eftir lögreglu að sprengju­leitar­hundar séu á staðnum og nú sé verið að kanna hvers lags er.

Taskan fannst í álmu 3, þar sem Icelandair er með sína aðstöðu á flug­vellinum. Ekki hefur náðst í Guðjón Arngrímsson, upplýsinga­fulltrúa Icelandair, vegna málsins. Guðjón segir hins vegar í samtali

við RÚV

að hann hafi fengið tilkynningu um rýminguna en flugmála­yfirvöld fullyrði að málið eigi ekki að hafa áhrif á brott­farir flugvéla.

Frétta­maður DR, Kasper Hartmann, er á flug­vellinum. Hann sagði upphaf­lega að einnig væri búið að girða af álmu 2, en þar hefur WOW Air sína aðstöðu á flug­vellinum. DR hefur nú dregið þær upplýsingar til baka og beðist afsökunar á mistökunum.

Upplýsinga­fulltrúi Kastrup-vallar segir að verið sé að flytja starfsemi úr álmu 3 í álmu 2, þar sem allt sé með eðlilegum hætti. Ekki sé hægt að segja neitt til um hvenær hægt verði að opna álmuna aftur.

Annar frétta­maður DR, íþrótta­frétta­maðurinn Henrik Liniger, er á flug­vellinum vegna þess að hann var að lenda með flugi frá Álaborg. Liniger segir að lögregla sé mjög áberandi á staðnum auk sjúkra­bíla og slökkviliðs­bíla.

Engar lestar stoppa nú á Kastrup vegna aðgerða lögreglu. Rútur munu flytja fólk á milli álmu 2 og miðborgar Kaupmanna­hafnar í staðinn.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir því sem nýjar upplýsingar hafa borist. Hún verður áfram uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár