Vilja koma á fót kynjavakt

Nokkrir þing­menn VG leggja til að koma á kynja­vakt sem geri úttekt á því hvort og hvernig kyn hefur áhrif á aðkomu að ákvarð­ana­töku innan þings­ins og hvernig álykt­unum Alþingis og aðgerða­á­ætl­unum rík­is­stjórna í jafn­rétt­is­málum hefur verið fram­fylgt.

Tillaga til þings­á­lykt­unar um kynja­vakt Alþingis er nú til umræðu á þing­inu. Lagt er til koma á fót kynja­vakt, sem geri úttekt á því hvort og hvernig kyn hefur áhrif á aðkomu að ákvarð­ana­töku innan Alþingis, hvernig álykt­unum þings­ins og aðgerða­á­ætl­unum rík­is­stjórna í jafn­rétt­is­málum hefur verið fram­fylgt og skoði næmi Alþingis fyrir ólíkri stöðu kynj­anna sam­kvæmt kyn­næmum vísum Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins.

Fyrsti flutn­ings­maður er Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, en aðrir flutn­ings­menn eru allir úr VG.

Í til­lög­unni kemur fram að til að tryggja fjöl­breytt sjón­ar­mið skuli þátt­tak­endur í kynja­vakt Alþingis koma úr ólíkum áttum. „Að vinn­unni komi bæði full­trúar stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu, karlar og konur. Fulltrúi skrif­stofu Alþingis sitji í hópnum, sem og full­trúi starfs­manna Alþingis. Haft verði sam­ráð við jafn­réttis­nefnd skrif­stofu Alþingis.“

Segir jafn­framt í til­lög­unni að kynja­vaktin skuli skila for­seta Alþingis skýrslu fyrir 1. apríl ár hvert og for­seti leggja skýrsl­una fyrir Alþingi. Fyrstu skýrsl­unni verði skilað fyrir 1. des­em­ber á næsta ári. Lagt er til að sér­stak­lega verði könnuð vinnu­staða­menn­ing Alþingis með til­liti til sam­skipta kynj­anna.

Ekki bara fjöldinn sem skiptir máli

Í grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni kemur fram að konur séu aðeins 23,4 pró­sent þeirra sem sæti eiga á þjóð­þingum heims­ins. Þótt staðan sé betri hvað þetta varðar á Alþingi sé full þörf á að gera úttekt á kynja­jafn­rétti innan Alþingis. Enn fremur kemur fram að Alþjóða­þing­manna­sam­bandið hafi gefið út vísa til þjóð­þinga sem gera þeim kleift að meta kynja­jafn­rétti innan þeirra. Þar sé tekið til­lit til fleiri þátta en fjölda kvenna og karla og greint hvort bæði konur og karlar eigi aðild að ákvarð­ana­töku á öllum stigum og séu virkir þátt­tak­endur.

„Fjölmörg þjóð­þing hafa tekið upp slíka kynja­vakt sem fylgist með jafn­rétti kynj­anna. Í Finn­landi er sér­stök nefnd að störfum á vegum þings­ins í þessum málum.

Alþingi hefur á und­an­förnum árum sam­þykkt ýmsar stefnur og aðgerða­á­ætl­anir í jafn­rétt­is­málum. Nokkuð hefur þó skort á eft­ir­fylgni. Nefna má að fram­kvæmda­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum rann út vorið 2015, en ný var ekki sam­þykkt fyrr en í sept­em­ber 2016. Þá hefur ekki verið gerð heild­stæð aðgerða­á­ætlun gegn kyn­bundnu ofbeldi síðan árið 2011,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kynja­vakt­inni er ætlað að meta stöð­una í þessum efnum og fylgja eftir þegar með þarf, svo og að greina aðstöðu kynj­anna til að hafa áhrif og gera úttekt á þeim reglum og lögum sem í gildi eru varð­andi jafn­rétti kynj­anna. Í grein­ar­gerð­inni segir að nauð­syn­legt sé að Alþingi fylgist betur með þróun þessa mála­flokks en nú er. Alþingi sendi á síð­asta ári full­trúa á fund kvenna­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í fyrsta sinn frá hruni. Þar hafi glögg­lega komið fram hve vægi kynja­jafn­réttis er mik­il­vægt á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Staða starfsfólks Alþingis önnur en staða þingmanna

„Ísland stendur sig að mörgu leyti vel á þessum vett­vangi og er á ákveð­inn hátt til fyr­ir­myndar, ásamt því að styðja bar­áttu þeirra kvenna sem eiga í vök að verj­ast vegna fátæktar, stríðs­á­taka, karl­rembu og ýmis­legs fleira. Ísland hefur því að nokkru tví­þætt hlut­verk, að vera til fyr­ir­myndar og sækja um leið fram, ásamt því að koma öðrum til varnar og aðstoðar.

Hvað skrif­stof­una varðar er mik­il­vægt að fylgj­ast með fram­gangi í starfi og kynja­skipt­ingu í ólíkum störfum á vett­vangi þings­ins. Í þeim efnum er mik­il­vægt að byggja á því starfi sem unnið er innan jafn­réttis­nefndar skrif­stofu Alþingis. Staða starfs­fólks er nokkuð önnur en staða þing­manna og um það gilda önnur lög og reglur sem geta t.d. haft bein áhrif á skyldur skrif­stof­unnar til að gæta jafn­ræðis kynja í ráðn­ingum o.fl. Kynnæmir vísar Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins (IPU) taka þó til þings­ins alls, bæði til Alþingis sem lýð­ræð­is­vett­vangs og lög­gjaf­ar­sam­kundu sem og til skrif­stofu Alþingis sem vinnu­staðar opin­berra starfs­manna,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár