RARIK greiðir 310 milljónir í arð

Hagnaður RARIK á árinu 2018 var 2,7 milljarðar króna sem er um 11 prósent meiri hagnaður en á árinu 2017 þegar hagnaðurinn nam 2,5 milljörðum.

Hagnaður RARIK samstæðunnar á árinu 2018 var 2,7 milljarðar króna sem er um 11 prósent meiri hagnaður en á árinu 2017 þegar hagnaðurinn nam 2,5 milljörðum. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var í dag en þar var ákveðið að greiða 310 milljónir króna í arð til eiganda.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá fyrir­tækinu.

Rekstrar­tekjur RARIK hækkuðu um 12 prósent frá árinu 2017 og voru um 16.6 milljarðar króna en rekstrar­gjöld hækkuðu um 10 prósent og námu 13 milljörðum. Heildar­eignir RARIK í árslok 2018 voru 66 milljarðar króna og jukust um 7,5 milljarða á milli ára. Eigið fé samstæðunnar í árslok 2018 nam 41,1 milljarði króna og er eiginfjár­hlutfallið 62,4 prósent.

Fjárfest var fyrir 3,7 milljarða króna á árinu, sem er talsvert minna en áætlað var, samkvæmt fyrir­tækinu, en um 300 milljónum króna meira en árið 2017. Áætlað er að fjár­festingar aukist enn á yfir­standandi ári og geti numið allt að 7 milljörðum króna á árinu 2019. Haldið var áfram stækkun og endurnýjun dreifi­kerfisins og voru lagðir alls 263 km af nýjum jarð­strengjum á árinu og er nú svo komið að um 62 prósent af háspennu­dreifikerfi Rarik er í þriggja fasa jarð­strengjum sem er í samræmi við lang­tímaáætlun um endurnýjun loftlínu­kerfisins.

„Með aukinni notkun jarð­strengja í stað loftlína hefur dregið mikið úr fyrirvara­lausum rekstrar­truflunum í dreifi­kerfinu því þar með hverfa að mestu áhrif veðurs á kerfið. Á síðasta ári voru fyrirvara­lausar truflanir 13% færri en að meðaltali síðustu 10 ára á undan,“ segir í tilkynningunni.

Stjórn RARIK var endur­kjörinn á aðal­fundinum í dag en hana skipa Birkir Jón Jónsson, sem er formaður, Arndís Soffía Sigurðar­dóttir, Álfheiður Eymars­dóttir, Kristján L. Möller og Valgerður Gunnars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár