Auglýsingaherferðin sem breytti Svíþjóð

Í desember árið 2001 birtist sjónvarps­auglýsing frá verslunar­keðjunni ICA sem hefur heldur betur reynst söguleg. ICA-keðjan er ráðandi á matvöru­markaðinum í Svíþjóð með um helmings markaðs­hlutdeild og hátt í 1400 búðir í landinu öllu. Reyndar hefur verslunin alltaf verið framarlega á auglýsinga­markaðinum. Eftir veggspjalda­gerð fyrir tíma sjón­varpsins tóku við svo kallaðar húsmæðra­myndir á sjötta áratug síðustu aldar. Þar var um að ræða stuttar auglýsinga­myndir sem voru sýndar í kvikmynda­húsum og oft voru vöru­kynningar samhliða sýningunum. Fyrsta myndin, sem var einmitt framleidd fyrir ICA, var Fru Plotter och fru Planér þar sem segir frá tveimur misskipulögðum húsmæðrum. Hún var sýnd ríflega 500 sinnum og talið er að yfir 200.000 konur hafi séð hana.

Það var ekki fyrr en 1987 sem sýna mátti auglýsingar í sjónvarpi í Svíþjóð og eftir misgóða spretti hitti ICA í mark í desember 2001. Auglýsingin var í nokkurs konar sápuóperu­stíl og fjallaði um yfir­manninn Stig og þrjá aðra starfs­menn í ótilgreindri ICA-verslun. Til að byrja með var ný auglýsing frumsýnd vikulega en síðar á tveggja vikna fresti. Sögu­þráðurinn er sjaldnast mjög flókinn og byggir á samskiptum starfs­mannanna sem stíga sjaldnast í vitið. Í fyrstu auglýsingunni byggðu undir­mennirnir pýramída úr matvörum sem yfir­maðurinn Stig var ekki ánægður með.

Langlífasta auglýsingaherferð sögunnar


Í gegnum tíð­ina hafa ýmsir leik­arar komið og farið og tekið að sér hlut­verk í þess­ari merki­legu aug­lýs­inga­sápu. Tveir leik­arar hafa reyndar verið með frá upp­hafi en í síð­ustu viku til­kynnti ICA-Stig eins og hann er kall­aður að nú væri komið að leikslokum. Frá því að hann klædd­ist hvíta jakk­anum í fyrsta sinn fyrir rúmum þrettán árum hefur Hans Mosesson leikið í 512 aug­lýs­ingum og er fyrir löngu orð­inn heim­il­is­vinur í Svíþjóð. Hann segir sjálfur að þetta komi á óvart því upp­runa­lega hafi hann sam­þykkt að leika í fimm aug­lýs­ingum. Það sé nefni­lega hættu­legt fyrir leik­ara að taka að sér svona hlut­verk því auð­velt sé að fest­ast í því. Það stóð ekki á kveðjum eftir til­kynn­ing­una frá Stig. „ICA ætti að fram­leiða bíó­mynd með Stig áður en hann hættir“; „nei, nei, nei og aftur nei“ og svo auð­vitað „hann má ekki hætta, hann er ICA“.

Í maí árið 2007 tilkynnti Heimsmetabók Guinnes að ICA-sápan væri þá þegar orðin langlífasta leikna auglýsinga­herferð sögunnar og síðan þá hafa rúmlega 300 auglýsingar bæst við. Fjöldinn allur af frægu fólki hefur komið fram í auglýsingunum, meðal annars formaður femínista­flokksins Gudrun Schyman, sjónvarps­kokkurinn Jamie Oliver og sjálfur landsliðs­þjálfarinn Lars Lagerbäck.

Lærlingurinn sem breytti Svíþjóð


En lík­lega vöktu fáar per­sónur jafn mikla athygli og Jerry sem leik­inn var af Mats Melin. Mats, sem hefur einnig leikið í kvik­myndum og leik­sýn­ingum, er með downs heil­kenni. Í aug­lýs­ing­unum var hann yfir­leitt rödd skyn­sem­innar og sá snjall­asti af starfs­fólk­inu. Þegar Jerry hóf störf sem lær­lingur árið 2009 tók sænska þjóðin honum opnum örmum og í dag hafa ríf­lega 430 þús­und líkað við aðdá­enda síðu hans á Facebook. Ferða­lagið hefur þó ekki verið ein­falt. Þegar hann fædd­ist var for­eldr­unum rétt skjal sem þau áttu að skrifa undir og senda hann þar með á stofnun. Árið 1969 datt engum í hug að þau ætl­uðu sér að ala upp fatlað barn. Í skól­anum var honum strítt og for­eldr­unum var til­kynnt reglu­lega að Mats myndi aldrei spjara sig sem sjálf­stæður ein­stak­lingur.

Annað átti heldur betur eftir að koma á daginn. Reyndar gekk ekki þrauta­laust fyrir sig að taka upp fyrstu auglýsinguna þar sem Jerry kom fyrir því hann mætti ekki fyrsta töku­daginn. Mats átti nefnilega tíma í þvotta­húsinu og þegar hann hefur verið pantaður þarf allt annað að víkja. Þetta hefur reyndar ekkert með downs heilkennið að gera heldur er þetta hið alþekkta sænska heilkenni, sem getur farið stórkost­lega í taugarnar á Íslendingum í Svíþjóð. ICA-auglýsingarnar með Jerry þykja hafa breytt afstöðu margra til einstaklinga með downs heilkenni og hafa fengið marg­víslegar viðurkenningar í gegnum árin. Árið 2012 fékk Mats til dæmis Titan-eggið sem eru auglýsinga­verðlaun sem veitt eru þeim sem hafa á einhvern hátt hvatt aðra til dáða. Í dag er hann alltaf með nokkrar eiginhandar­áritanir í buxna­vasanum, svona ef ske kynni að aðdáandi bæði um eina.

Þann fyrsta febrúar verður síðasta auglýsingin með ICA-Stig sýnd í Svíþjóð. Fram­leiðendurnir hafa tilkynnt að nýr Stig verði kynntur til sögunnar en óvíst er hvort hann hljóti sama sess hjá þjóðinni og sá sem nú kveður. Sænska þjóðin mun þó líklega fylgjast með fjórum starfs­mönnum ICA um ókomin ár því engin áform eru uppi um að hætta fram­leiðslunni. Í skipulögðu landi eins og Svíþjóð þar sem hálf þjóðin borðar Tacos á föstu­dögum þykja þetta væntanlega góð tíðindi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár