Þegar njósnari er handtekinn í Austur Asíu

Kim Hyon-hui.
Kim Hyon-hui.

Nýlega lauk þríhliða leiðtoga­fundi Suður Kóreu, Japan og Kína í Seúl. Leiðtogar ríkjanna þriggja lýstu því yfir að þíða væri komin í samskipti þeirra eftir þriggja ára frost. Ófáum frétta­skýrendum þótti að fyrsti kven­forseti Suður Kóreu, Park Geun-hye, ætti heiðurinn að bættum samskiptum á fundinum. Kjarnorku­áætlun Norður Kóreu var efst á lista í umræðum um öryggismál. Japanir eru óhagganlegir í því máli.

Afstaða þeirra þar á sér sérstaka forsögu.

Hvernig er að gleypa blásýrutöflu?

Líklega hafa fæstir ímyndað sér hvernig það er að gleypa blásýru­töflu og binda enda á lífið í einu vetfangi. Þann 1. desember árið 1987 gerði ung kóresk kona það eftir að hafa verið stöðvuð á flug­vellinum í Bahrein. Hún hét Kim Hyon-hui og lifði sjálfsmorðstilraunina af. Í kjölfarið átti hún eftir að svipta hulunni af njósna­sögu sem er lyginni líkust. Uppljóstrunin varð hluti af milliríkja­deilu milli Japans og Norður Kóreu sem enn er óleyst.

Til að skilja deiluna þurfum við að flakka nokkra áratugi aftur í tíma, undir lok Kalda stríðsins.

Rekja má söguna aftur til nóvember árið 1977. Þá var Megumi Yokata, japönsk 13 ára stúlka, á leið heim úr skóla í hafnar­borginni Niigata. Hún gekk með vinkonu sinni hluta úr leið og í námunda við afgirtan leikvöll kvöddust þær. Það var í síðasta skipti sem Megumi sást það kvöldið. Móðir hennar Sakie og bræður hennar tveir leituðu fram á nótt. Hvarf hennar var tilkynnt og lögreglan leitaði hennar í margar vikur en án árangurs. Vikurnar urðu að árum og árin að áratugum.

Tuttugu árum síðar bankaði japanskur blaða­maður upp á hjá foreldrum Megumi. Hann tjáði þeim að dóttur þeirra hefði verið rænt af Norður kóreskum leyni­þjónustu­mönnum. Þeir fóru með hana í bát og sigldu til Norður Kóreu. Sagan segir að Megumi hafi streist svo mjög á móti að hún hafi verið alblóðug þegar á áfanga­stað var komið. Hún klóraði í skips­skrokkinn alla leiðina.

Örlög í það minnsta sautján japanskra ríkis­borgara á árunum 1977 til 1983 voru svipuð. Aðferðir Norður kóresku leyni­þjónustunnar voru einfaldar og illskeittar. Dulbúið fiskiskip sigldi upp að ströndum Japan. Kafarar fóru í land og gripu fórnar­lömbin, stundum af handahófi, og gúmbátur frá skipinu kom snöggt að til að sækja flokkinn. Gíslarnir voru yfirleitt sendir í njósna­skóla í Norður Kóreu til að kenna japönsku eða látnir giftast japönskum kommúnistum sem höfðu gengið Norður kóreskum stjórn­völdum á hönd. Vitneskjan um japönsku gíslanna var óstaðfest þar til Kim Hyon-hui var tekin höndum.

Dramatískar kringumstæður

Kringum­stæður handtöku hinnar kóresku Kim voru ekki síður dramatískari en hvarf Megumi Yokata. Þann 29. nóvember árið 1987 var Boeing 707 vél Suður kóreska flug­félagsins Korean Air í löngu áætlundarflugi með viðkomu í Baghdad, Abu Dhabi, Bangkok og heim aftur til Seúl. Kim Hyon-hui var 25 ára gömul þegar hún gekk um borð í vélina í Baghdad ásamt samstarfs­manni sínum. Þau voru voru með fölsuð japönsk vegabréf og þóttust vera feðgin á ferðalagi. Sprengju sem falin var í Panasonic útvarps­tæki kom hún fyrir yfir sætum 7C og 7B. Þau gengu síðan frá borði þegar vélin milli­lenti í Abu Dhabi. 104 farþegar og ellefu manna áhöfn voru um borð þegar vélin sprakk í loft upp skammt vestan af Tælandi.

Tilgangurinn með því að granda flug­vélinni hefur aldrei verið ljós. Helsta kenningin er sú að með ódæðinu hafi Norður kóresk stjórn­völd viljað valda skelfingu í aðdrag­anda Ólympíu­leikana í Seúl 1988 og letja erlend ríki til þátttöku.

Strax í kjölfar flug­skaðans hófst æsilegur eltinga­leikur. Norður kóresku njósn­ararnir ætluðu fyrst til Amman í Jórdaníu en vegabréfs­áritanir voru ófullnægjandi. Þau flugu því til smáríkisins Bahrein þar sem þau biðu í tvo daga eftir næsta flugi. Japönsk stjórn­völd staðfestu að einu japönsku farþegarnir í fluginu örlaga­ríka voru með fölsuð japönsk vegabréf. Við innritun í flug á í Bahrein fundust vega­bréfin og þau voru tekin höndum.

Þegar yfirheyrslur hófust vissu Kim og samsæris­maður hennar að handtaka þeirra myndi bendla Norður kóresk stjórvöld við málið. Þau áttu sér enga undankomu­leið og báðu um leyfi til að reykja sígarettu. Þau bitu í filterinn þar sem blásýru­hylki voru falin. Hann dó en í Bahrein tókst að bjarga lífi hennar.

Fyrirmælin komu frá Kim Jong-il

Eftir það var Kim framseld til Suður Kóreu. Það tók átta daga til að vinda ofan af dular­gervi hennar en hún hélt fast í það að vera japanskur ferða­maður. Eftir að hafa séð daglegt líf Suður Kóreubúa og þá auðlegð sem þeir bjuggu við byrjaði hún smátt og smátt að átta sig á því að áróðurinn um að þeir væru vansælar strengja­brúður Banda­ríkjanna væri ekki á rökum reistur. Þegar hún leysti frá skjóðunni teygðu uppljóstranir hennar sig lengra en nokkurn óraði fyrir.

Samkvæmt Kim komu fyrir­mælin um að sprengja flug­vélina frá sjálfum forseta Norður Kóreu, Kim Jong-il. Í kjölfarið settu bandarísk stjórn­völd Norður Kóreu á lista yfir ríki sem styðja hryðju­verk.

En uppljóstrun hennar sem hefur ef til vill haft hvað mest lang­varandi áhrif hafði með Japani sem hún kynntist í Norður Kóreu að gera. Þegar henni var sýnd ljósmynd af Yaeko Taguchi, einstræðri tveggja barna móður sem hvarf í Tókýó árið 1978, þá sagði hún óvænt: „kennarinn minn.“

Í ljós kom að Kim hafði lært japönsku af Yaeko á sex ára tímabili áður en hún grandaði flug­vélinni. Yaeko hafði verið rænt af Norður kóreskum leyni­þjónustu­mönnum árið eftir að hin þrettán ára gamla Megumi Yokata hvarf. Kim á að hafa borið vitni um það að enn hafi Yaeko sungið börnum sínum tveim í Japan vöggu­vísur þó svo hún væri órafjarri þeim eftir að henni var rænt og flutt til Norður Kóreu.

Af heimildum um málið er ljóst að orð Kim Hyon-hui eru líklega fyrsti óyggjandi vitnis­burðurinn um líf Yaeko Taguchi og Megumi Yokata í Norður Kóreu og mannrán Norður kóreskra stjórn­valda í Japan.

Dæmd til dauða

Kim Hyon-hui var dæmd til dauða í Suður Kóreu fyrir aðild sína að flug­skaðanum. En fyrrum forseti Suður Kóreu náðaði hana með þeim orðum að líkt og farþegarnir væri hún fórnar­lamb áróðurs Norður kóreskra stjórn­valda. Hún giftist Suður kóreskum leyni­þjónustu­manni, eignaðist tvö börn og býr nú í felum þar í landi af ótta við hefndar­aðgerðir Norður Kóreu. Í heimsókn til Japan hitti hún eftir­lifandi ættingja Megumi Yokata og Yaeko Taguchi.

Árið 2002 kom fyrrum forseti Norður Kóreu, Kim Jong-il, öllum á óvart þegar hann staðfesti við þáverandi forsætis­ráðherra Japans, Junichiro Koizumi, að ríki sitt hefði í raun rænt 13 japönskum ríkis­borgurum. Samkvæmt Norður kóreskum stjórn­völdum voru fimm enn á lífi og var þeim síðar leyft að snúa aftur til Japan. Átta voru látnir, þar á meðal Megumi og Yaeko. Örlög hinna átta fráföllnu og í það minnst fjögurra annarra eru þrætuepli sem er alltaf til umræðu á þríhliða leiðtoga­fundi Japan, Kína og Suður Kóreu.

Núverandi forsætis­ráðherra Japans, Shinzo Abe, hefur sett uppgjör mannrána Norður Kóreu­stjórnar á japönskum ríkis­borgurum í forgang á meðal stefnu­mála sinna. Hann hefur skipað ráðherra­nefnd um málið og jafnvel gengið svo langt að gera uppgjörið að óhagganlegu skilyrði fyrir frekara samstarfi milli ríkjanna. Sú afstaða mun ekki að öllum líkindum ekki breytast nema fyrir þrýsting annarra ríkja sem eiga hlut að máli.

Kim Hyon-hui olli eitt sinn dauða 115 manns, mestmegnis Suður kóreskra flug­farþega, en varpaði einnig ljósi á mannrán fjölda japanskra ríkis­borgara. Báðir atburðirnir voru að undirlagi Norður Kóreu. Hún hefur síðan þá tileinkað líf sitt því að bæta fyrir skaðann sem hún olli fjöl­skyldum þeirra sem misstu ástvini sínu af hennar völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár