Ríkisstjórnin örugg: Stórsigur Framsóknar bætir upp fylgishrun VG

Framsóknar­flokkurinn er sigurvegari kosninganna og bætir við sig fimm þing­mönnum frá síðustu kosningum. VG tapar fylgi og þremur mönnum en Sjálfstæðis­flokkur heldur velli en tapar fylgi.

Sigurður Ingi Jóhannsson gæti mögulega myndað nýja ríkisstjórn.
Sigurður Ingi Jóhanns­son gæti mögu­lega myndað nýja rík­is­stjórn. Mynd: Norden

Ríkis­stjórnar­flokkarnir halda meirihluta sínum og vel það. Samtals fá þeir 37 þingmenn. Framsóknar­flokkurinn stækkar verulega og fær þrettán þingmenn; fimm fleiri en í síðustu kosningum. Vinstri græn tapa aftur á móti verulega og missa þrjá.

Flokkur fólksins bætir við sig og fær 8,85 próesnt atkvæða, sem tryggir flokknum sex þingsæti. Flokkurinn fékk fjóra menn kjörna síðast en rak svo hálfan þing­flokkinn. 

Frjáls­lyndu miðju­flokkarnir, Viðreins, Píratar og Samfylking, uppskáru öll minna en kannanir höfðu gefið til kynna. Samfylking tapar þingmanni frá síðustu kosningum en Viðreisn bætir við einum. Píratar standa í stað. 

Miðflokkurinn hrundi í kosningunum en náði tveimur kjördæma­kjörnum þingmönnu mauk þess að fá jöfnunar­mann. Flokkurinn fékk 5,45 prósent atkvæða. 

Sósíalista­flokkurinn fékk ekkert þingsæti og rétt rúmlega 4 prósent atkvæða. Það hljóta að teljast vonbrigði þar sem flokkurinn hafði mælst tvöfalt sterkari í könnunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár