Afnám fangelsisrefsinga vegna neysluskammta til skoðunar

Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra segir að það samræmist illa hugmyndum um skaða­minnkun að það „varði fangelsis­refsingu að lögum að vera neytandi fíkniefna“.

Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svav­ars­dóttir Heil­brigð­is­ráð­herra hefur kallað eftir áhættu­mati á afnámi refs­inga við vörslu neyslu­skammta vímu­efna. Mynd: Pressphotos

Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra segir ríkis­stjórnina stefna að hertum aðgerðum gegn fíkniefna­sölum, innflutningi og fram­leiðslu fíkniefna, en jafnframt verði fíklum tryggð viðunandi meðferðar­úrræði. Sjálf hafi hún lagt sérstaka áherslu á skaða­minnkun og telji það samræmast illa slíkum hugmyndum að það „varði fangelsis­refsingu að lögum að vera neytandi fíkniefna“. 

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherra við fyrir­spurn Helga Hrafns Gunnars­sonar, þingmanns Pírata, sem spurði hvort til stæði að breyta lögum um ávana- og fíkniefni á þá leið að afnema fangelsis­refsingu fyrir vörslu á neyslu­skömmtum. Vísar hann til slíkrar tillögu sem fram kom í skýrslu starfs­hóps um skaða­minnkun frá 2016. 

„Í athuga­semdum við nefnda tillögu að breytingum á lögum um ávana- og fíkniefni, sem varðar afnám fangelsis­refsinga fyrir vörslu á neyslu­skömmtum, leggur starfs­hópurinn til að áður en ráðist verði í þær breytingar verði gert áhættumat á áhrifum þeirra og farið yfir reynslu þeirra þjóða sem farið hafa þessa leið,“ segir í svari Svandísar, sem hyggst setja af stað vinnu við gerð slíks áhættu­mats. „Mun ráðast af niður­stöðu þess hvort frumvarp til laga um breytingu á lögunum verði lagt fram.“

Hún bendir á að nú þegar sé hafin vinna við undir­búning að opnun neyslu­rýmis fyrir langt leidda vímuefna­neytendur. Þannig verði einstaklingum sem sprauta sig í æð tryggður aðgangur að hreinum sprautu­búnaði, nála­skipti­þjónustu og gjald­frjálsri grunn­heilbrigðis­þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár