Mikill viðbúnaður í Stokkhólmi vegna bankarána

Mikill viðbúnaður er nú hjá lögreglu í Stokk­hólmi vegna bankarána sem framin voru í morgun. Ostermalmstorgi hefur verið lokað, en útibú Nordea við Norrmalstorg og Handelsbankans í næsta nágrenni voru rænd. Þá var afgreiðsla með gjaldeyri einnig rænd, að því er sænska ríkis­útvarpið greinir frá.

Engar upplýsingar hafa komið fram um hversu miklum peningum ræningjarnir náðu en þeir voru að minnsta kosti þrír, beittu ógnunum, vopnaðir skotvopni og exi, þegar þeir réðust til atlögu. Þeirra er nú leitað.

Lögreglan í Svíþjóð vinnur að rannsókn málsins. Á vettvangi hafa fundist hlutir sem mögulega geta verið sprengjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár