Eru Grikkir að gefa eftir? Nú er að duga eða drepast

Grísk stjórn­völd, með Syriza flokkinn í broddi fylkingar, vilja að Grikkir verði áfram hluti af evru­svæðinu en að kröfur um aðhald í ríkis­rekstri verði „tónaðar niður“ og raunhæfar til lengdar. Mikilvægt sé að ná samkomu­lagi um framhald lána­fyrir­greiðslu frá Evrópu­sambandinu, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum, sem allra fyrst.

Forsætis­ráðherra Grikk­lands, Alexis Tsipras, sagði í samtali við Bloomberg frétta­veituna, sem fjöl­miðillinn Quartz vísar til í umfjöllun sinni, að horft sé til þess að ná samkomu­lagi um framhald lána­fyrir­greiðslu til landsins, og forsendur hennar, fyrir næst­komandi föstudag, en þá hittast leiðtogar Evrópu­sambands­ríkjanna í Riga, og funda í tvo daga. Tsipras segir að umboð stjórn­valda frá Grikkjum sé skýrt; grísk stjórn­völd eigi að vera áfram hluti af evru­svæðinu, án þess að þurfa að ráðast í harðar sparnaðar­aðgerðir í ríkis­fjármálum sem bitni á innviðum landsins og efnhagslegum styrk þess. Þessi orð þykja sýna, að Tsipras og félagar séu tilbúnir að gefa eitthvað eftir, til þess að mæta þeim bráða­vanda sem gríska hagkerfið er nú komið í, eftir að vond staða landsins versnaði enn meira.

Björgunar­pakkinn sem Grikkir hafa unnið eftir, eftir samkomu­lagi við kröfuhafa og alþjóða­stofnanir ESB og AGS, frá árinu 2012, er upp á samtals 240 milljarða evra. Mikið fjár­streymi hefur verið frá Grikk­landi að undan­förnu, eins og þýski bankinn Deutsche Bank tók saman í minnis­blaði, og hefur fjárhagur landsins veikst mikið því samhliða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár