Deutsche Bank: Peningar fjárfesta streyma út úr gríska hagkerfinu

Eigendur fjármagns sem verið hefur í gríska hagkerfinu virðast nú reyna allt sem þeir geta til að koma fjármagningu annað. Hvert skiptir ekki öllu máli, bara að það sé ekki í Grikk­landi. Á síðustu sex mánuðum hefur fjár­festing, innlán og annað slíkt í eigu fjárfesta dregist saman um 25 prósent af lands­framleiðslu Grikk­lands. Frá febrúar­mánuði 2015 hefur um 51 milljarður dala, rúmleg 6.700 milljarðar íslenskra króna, af fjármagni í eigu einka­aðila flúið gríska hagkerfið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnis­blaði frá greiningar­aðilum þýska stór­bankans Deutsche Bank sem sent var á valda viðskipta­vini hans í gær. Business Insider greinir frá.

Það eru ekki bara útlendingar sem eru að flýja með peninganna sína frá Grikk­landi. Innlendir fjár­festar eru að gera það líka, tæpur helmingur þess fjármagns sem hefur farið út úr hagkerfinu var í eigu grískra fjárfesta.

Til að setja þann mikla flótta fjármagns sem átt hefur sér stað í Grikk­landi síðasta hálfa árið í samhengi er hægt að bera stöðuna þar saman við önnur lönd Evrópu sem hafa upplifað miklar fjárhagslegar þrengingar. Samdráttur fjár­festinga, innlána og annarra slíkra, eigna verið rétt yfir sex prósent af lands­framleiðslu á Italíu, undir fimm prósent á Spáni og hefur aukist um tæp fimm prósent í Portúgal.

Vandræði með að mæta gjalddögum


Rótttæki vinstri­flokk­ur­inn Syriza vann stór­sigur í grísku þing­kosn­ing­unum í jan­úar síð­ast­liðnum, meðal ann­ars á grund­velli lof­orða um að hætta að starfa eftir rík­is­fjár­mála­á­ætl­unum í sam­starfi við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og Evr­ópu­sam­bandið.

Það hefur hins vegar gengið illa hjá Grikkjum að ná sínu fram í viðræðum við þessa aðila og samninga­viðræður um aukin neyðarlán, sem eru ríkinu nauðsynleg, hafa að mestu farið fram á forsendum lánveitendanna, ekki Grikkja. Nokkrum sinnum hefur stefnt í að Grikkir myndu ekki ná að mæta stórum gjald­dögum á lánum sem þegar var búið að veita ríkinu, en því hefur alltaf verið afstýrt á síðustu stundu.

Undir lok apríl lofaði forsætis­ráðherra Grikk­lands, Alexis Tsipras, þjóðar­atkvæða­greiðslu um skulda­samkomulag við Evrópu­sambandið ef það yrði ekki í samræmi við kosningar­loforð Syriza.

Grikkir hafa mætt tveimur stórum gjald­dögum í þessum mánuði og komu mörgum markaðs­aðilum á óvart með því að greiða Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum 770 milljónir evra síðastliðinn þriðjudag. Margir þeirra höfðu búist við að slík upphæð væri einfald­lega ekki til í gríska ríkis­kassanum. Fleiri gjald­dagar eru hins vegar framundan.

Stjórnendur og almenningur vilja Grikki út úr evrunni


Vegferð grískra stjórn­valda um skulda­eft­ir­gjöf og nýja samn­inga um lána­kjör er ekki vin­sæl hjá almenn­ingi í stærstu löndum evru­svæð­is­ins. Sér­stak­lega ekki í því stærsta, Þýska­landi.

Fyrr í þessum mánuði gerði þýska viðskipta­blaðið Handelblatt könnun á meðal stjórn­enda helstu fyrir­tækja í landinu um hvort Grikkir ættu að yfirgefa evruna.

Í henni kom í ljos að 44 prósent þeirra 673 stjórn­enda þýskra fyrir­tækja sem spurðir voru um málið vildu að Grikkir hefðu frumkvæði að því að hætta með evru sem gjald­miðil.

Átta af hverjum tíu þýskum stjórn­endum telja að ef Grikkir myndu yfirgefa evruna þá myndi það ekki hafa neikvæð áhrif á önnur ríki sem eru hluti af mynt­samstarfinu og minna en fimmtungur aðspurðra hafði áhyggjur af efnahagslegri keðjuverkun þess.

Það eru ekki bara fyrir­tækin í Þýska­landi sem hafa þá skoðun að Grikkir ættu að yfirgefa mynt­samstarfið. Í könnun sem framkvæmd var í mars kom í ljós að rúmur helmingur almennings er á þeirri skoðun líka.

Í Grikk­landi er staðan hins vegar allt önnur. Þar vill meirihluti lands­manna vera áfram hluti af evru­svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár