Meirihluti Breta vill vera áfram í Evrópusambandinu

Bretar sem vilja að Bretland tilheyri áfram Evrópu­sambandinu (ESB) mælast 19 prósentu­stigum fleiri en þeir sem vilja ganga úr sambandinu, í nýrri könnun sem gerð var fyrir Daily Mail og frétta­stofa Bloomberg greinir frá. Þeir sem eru fylgjandi áfram­haldandi aðild voru 55 prósent aðspurðra en 36 prósent söðgðust á móti. Síðast þegar könnunin var gerð, í júní 2015, sögðust 51 prósent vilja vera áfram í sambandinu en 33 sögðust vera á móti. Hlutfall þeirra sem sögðust ekki hafa gert upp hug sinn lækkaði milli kannananna úr 16 prósentum í átta prósent.

Könnunin sem gerð var fyrir Daily Mail sýnir aðrar niður­stöður en könnun YouGov Plc gerði um miðjan síðasta mánuð. Þá mældist stuðningur við útgöngu tveimur prósentu­stigum meiri en við aðild að ESB.

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, hefur heitið því að efna til þjóðar­atkvæða­greiðslu um áfram­haldandi aðild að Evrópu­sambandinu árið 2017, í kjölfar enurskoðunar samnings Bretlands við sambandið. Í viðtali við útvarps­stöðina BBC Radio 4 í gær sagði Cameron að góður gangur væri á málum, en hvorki forsætis­ráðherra né aðrir ráðherrar hafa gefið mikið upp til þessa um gang viðræðna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár