Vilja að stjórnvöld beiti sér gegn „straumi“ hælisleitenda til Íslands

Leiðara­höfundar Morgun­blaðsins beina ítrekað spjótum sínum að flótta­fólki.

Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen eru ritstjórar Morgunblaðsins og bera ábyrgð á ritstjórnarskrifum þess.
Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen eru rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins og bera ábyrgð á rit­stjórn­ar­skrifum þess.

Leiðara­höfundur Morgun­blaðsins hvetur stjórn­völd til að grípa til ráðstafana í því skyni að takmarka „straum flótta­manna og hælis­leitenda“ til Íslands. 

Í leiðara blaðsins í dag er fjallað um að fjölgun flótta­manna sé orðinn illviðráðanlegt vandamál innan Evrópu­sambandsins. Bent er á að Ísland er eitt Schengenríkjanna, en augljósar land­fræðilegar ástæður geri það að verkum að straumur flótta­manna hingað verði ekki sá sami og til ríkja á borð við Ungverja­land og Grikkland. „En Ísland er líka fámennt land og þolir enn síður en fjölmennar þjóðir mikinn fjölda flótta­manna. Stjórn­völd hér hljóta því að huga vel að þeirri þróun sem er að verða í þessum efnum í Evrópu og til hvaða ráða þarf að grípa hér á landi til að takmarka straum flótta­manna og hælis­leitenda,“ segir leiðara­höfundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár