Bjarni Ármanns aftur farinn að græða á tá og fingri

Bjarni Ármannsson er aftur orðinn stórtækur þátt­takandi í íslensku viðskipta­lífi. Félög hans græddu 320 milljónir króna í fyrra. Hann situr í stjórnum tólf fyrir­tækja og á hreina peninga­eign upp á nærri 5 milljarða í tveimur eignarhalds­félögum. Þá fjárfesti hann í fyrra í hlutdeildar­skírteinum í ótilgreindum fjár­festingar­sjóðum fyrir 240 milljónir króna.

Hagnaður í öllum fyrirtækjunum
Hagnaður í öllum fyr­ir­tækj­unum Bjarni Ármanns­son hagn­að­ist í þremur fyr­ir­tækjum sem hann á í fyrra og sitja þessi félög hans á um fimm millj­arða króna eignum.

Þrjú félög í eigu Bjarna Ármanns­sonar, fjár­festis og fyrr­verandi forstjóra Glitnis, högnuðust um tæplega 320 milljónir króna á síðustu ári. Þetta kemur fram í ársreikningum félaganna sem Bjarni skilaði til ársreikninga­skrár Ríkis­skattstjóra fyrir skömmu. Félögin sem um ræðir eru aðal­fjár­festingar­félag Bjarna, Sjávarsýn, Landsýn og Gasfélagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár