RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum

RÚV má fækka útvarps­stöðvum verði ný drög að frumvarpi um RÚV samþykkt. Þá er stefnt á að RÚV dragi úr vægi sínu á auglýsinga­markaði um 10 prósent.

Efstaleitið
Efsta­leitið Bygging RÚV

Nýtt frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskóla­ráðuneytisins um RÚV hefur verið birt í samráðs­gátt, en samkvæmt frum­varpinu verður RÚV heimilt að fækka útvarps­stöðvum kjósi það svo.

Segir í nánari skýringum að felldar verði brott úr 3. grein laganna kvaðir um lágmarks­fjölda útvarps- og sjónvarps­stöðva sem Ríkis­útvarpinu er skylt að dreifa um allt land. Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarps­stöðvum. Ekki er talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása Ríkis­útvarpsins sé sérstak­lega tilgreindur í lögum eins og þar segir.

Fjallað hefur verið um aðrar breytingar sem finna má í frum­varpinu, svo sem að tekjur RÚV af útvarps­gjaldi verði skertar um fjárhæð sem nemur 10% af auglýsinga­tekjum RÚV á ári hverju. Er þetta gert til þess að minnka umsvif RÚV á auglýsinga­markaði.

Hægt er að rita umsagnir við frum­varpið á vef samráðs­gáttarinnar, en engin slík hefur borist þegar þetta er skrifað.

Á vef stjórnar­ráðsins …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár