Ríkið seldi Lyfju til Haga fyrir 6,7 milljarða

Smásölu­risinn Hagar, sem rekur Bónus og Hagkaup, hefur keypt lyfsölu­fyrirtækið Lyfju fyrir 6,7 milljarða króna af ríkinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Virðingu, sem sá um sölu­ferlið fyrir hönd íslenska ríkisins og félags þess, Lindar­hvols.

Skrifað hefur verið undir samning um kaup Haga hf. á öllu hlutafé í Lyfju hf. Kaup­samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleika­könnun og samþykki Samkeppnis­eftirlitsins. Reiknað er með að niður­staða áreiðanleika­könnunar liggi fyrir seinni part desember­mánaðar og að endanleg niður­staða Samkeppnis­eftirlitsins verði birt ekki síðar en um mitt ár 2017. Þar til niður­staða Samkeppnis­eftirlitsins fæst verður rekstur Lyfju hf. og dóttur­félaga með óbreyttu sniði. „Lyfja er stærsta keðja apóteka og heilsu­verslana á Íslandi en samtals rekur félagið 39 apótek, útibú og verslanir, auk minni útibúa, sem staðsett eru um land allt undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsu­hússins. Einnig á Lyfja dóttur­félögin Heilsu ehf. og Mengi ehf. Formlegt söluferli Lyfju hf. hófst 8. september sl. og í framhaldi fengu mögulegir tilboðs­gjafar fjárfesta­kynningu og aðgang að ítarlegum upplýsingum. Fjögur skuld­bindandi tilboð bárust svo í fyrir­tækið áður en frestur til að leggja slík tilboð fram rann út 7. nóvember sl. Hagar hf. áttu hæsta tilboðið sem hljóðaði upp á 6,7 ma.kr. heildar­virði og var því tekið,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár