Forstjóri Wells Fargo hættur vegna skandals

John G. Stumpf, stjórnar­formaður og forstjóri bandaríska bankans Wells Fargo, tilkynnti í dag að hann væri hættur hjá bankanum. Hann skrifaði stjórnar­meðlimum bréf þar sem hann sagðist ætla að hætta störfum. „Ég hef alltaf einbeitt mér að stjórnun fyrir­tækisins, en tel að það sé því fyrir bestu að ég hætti störfum,“ sagði Stumpf í stuttri yfir­lýsingu sem vitna er til í frétt New York Times.

Wells Fargo hefur verið mikið í umræðunni í Banda­ríkjunum eftir að kom í ljós að bankinn hafði í leyfis­leysi opnað reikninga án þess að viðskipta­vinir bankans hefðu haft vitneskju um það.

Bank­inn sjálfur rann­sak­ar nú hvernig tvær millj­ón­ir banka­reikn­inga voru opnaðir án leyf­is viðskipta­vina á yfir fimm ára tímabili, en innan­húsrannsókninni er ekki lokið. Bankanum hefur þegar verið gert að greiða 185 milljónir Bandaríkja­dala í sektir, eða sem nemur um 23 milljörðum króna.

Ein þeirra sem gagnrýndi Stumpf harðlega, eftir að málið kom upp, var Elizabeth Warren. Hún var meðal bandarískra þingmanna sem yfir­heyrði hann, þegar hann kom fyrir þingnefnd til að tjá sig um málið.

Wells Fargo hefur fallið mikið í verði að undan­förnu, og er ekki lengur verð­mætasti banki Banda­ríkjanna, líkt og hann var áður en fyrrnefnt mál kom upp. Markaðs­virði hans er nú 237 milljarðar Bandaríkja­dala, en það var tæplega 280 milljarðar Bandaríkja­dala um mitt þetta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár