Óttarr: Mál Bjartrar framtíðar voru ekki kosningaloforð heldur kosningaáherslur

Óljóst upp að hvaða marki Björt framtíð mun styðja eigin kosningamál þegar stjórnar­andstaðan setur þau á dagskrá. „Fátt gleður mig meira en að velta fyrir mér siðferði­legum og heimspeki­legum spurningum,“ sagði Óttarr Proppé í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í dag.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og heilbrigðis­ráðherra, gerði sérstak­lega að umtals­efni á Alþingi í dag að Björt framtíð hefði reynt að gefa ekki kosninga­loforð heldur kynna frekar kosninga­áherslur í aðdrag­anda kosninga. Þetta kom fram í svari hans við fyrir­spurn Loga Einars­sonar, formanns Samfylkingarinnar, um uppfyllingu kosninga­loforða Bjartrar framtíðar. Óljóst er upp að hvaða marki Björt framtíð mun styðja eigin kosningamál þegar stjórnar­andstaðan setur þau á dagskrá á kjör­tímabilinu.

Í fyrir­spurn sinni spurði Logi hvernig þingmenn Bjartrar framtíðar hygðust nálgast tillögur og frumvörp sem munu koma fram frá stjórnar­andstöðunni og eru í samræmi við áherslumál Bjartrar framtíðar í aðdrag­anda kosninga. „Ég get nefnt frumvarp um greiðslu­þátttöku sjúklinga sem mun koma fram, um áfram­haldandi vinnu við gerð stjórnar­skrár í samræmi við niður­stöður stjórnlaga­ráðs, að þjóðin fái sjálf að ákveða áfram­haldandi ESB-viðræður og kerfis­breytingar í sjávar­útvegi,“ sagði Logi og bætti við: „Hin spurningin er svo: Eru þingmenn Bjartrar framtíðar bundnir á einhvern hátt í stjórnar­samstarfinu til að greiða atkvæði gegn gefnum loforðum eða með teknu tilliti til hvenær tillögur koma fram?“

Óttarr Proppé svaraði með því að þakka Loga fyrir „heimspeki­lega“ fyrir­spurn. „Ég þakka hátt­virtum þingmanni kærlega fyrir fyrir­spurnina sem var talsvert á heimspeki­legum nótum sem gleður mig sérstak­lega, fátt gleður mig meira en að velta fyrir mér siðferði­legum og heimspeki­legum spurningum,“ sagði hann. Þá lagði hann áherslu á að þingmenn Bjartrar framtíðar myndu, rétt eins og aðrir, kjósa eftir samvisku sinni. 

„En við töluðum oft um það og höfum talað um það frá því að Björt framtíð var stofnuð að þegar við ræðum málefni fyrir kosningar reynum við að tala um það sem áherslur, það sem við viljum berjast fyrir, en ekki loforð vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því að í fæstum tilvikum munum við vera ein og sér með það vald að fullnægja þeim loforðum. Björt framtíð fékk ágæta kosningu en er eigi að síður einungis með fjóra þingmenn af 63, hefur þar af leiðandi augljós­lega ekki meiri hluta til að knýja loforð sín í gegn án þess að vera í samvinnu við aðra.“

Logi sagði svarið þunnt, jaðra við útúr­snúning, og endurtók spurningu sína. Þá svaraði Óttarr:

„Ég skal reyna að svara hátt­virtum þingmanni skýrar. Þingmenn Bjartrar framtíðar, eins og aðrir þingmenn á þingi, eru bundnir sannfæringu sinni þegar kemur að stuðningi mála eða synjun. Það er svo einfalt. Þau áherslumál, eins og ég orðaði það, eða kosninga­loforð eins og margir myndu kalla það, sem okkar flokkur lagði fram í kosningum eru áherslu­atriði flokksins og þau atriði sem við komum með inn í starfið á Alþingi. Svo ég ítreki það erum við auðvitað í ríkis­stjórnar­samstarfi þar sem hefur verið samið um áherslu í stjórnar­sáttmála. Hann liggur fyrir og er opinber og við stöndum við hann. Hann er ekki allur úr kosninga­loforða­lista mínum heldur er hann sameiginlegar áherslur flokkanna sem hafa ákveðið að vinna saman. Það fer mjög mikið eftir því hvaða mál eru undir hver afstaðan verður og hvenær á kjör­tímabilinu það verður. En ég skal fullvissa háttvirta þingmenn um það að við munum styðja við góð mál eins og við mögulega getum á þingi eins og aðrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár