Guðmundur rak Sif í kjölfar umfjöllunar um bætur til brotaþola

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindar­ráðherra, tók þá ákvörðun í dag að Sif Konráðs­dóttir, aðstoðar­maður hans, hætti störfum frá og með deginum í dag.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, hefur tekið þá ákvörðun að Sif Konráðs­dóttir, aðstoðar­maður hans, hætti störfum frá og með deginum í dag. „Ég óska Sif alls hins besta og þakka henni fyrir samstarfið,“ segir í tilkynningu sem Guðmundur Ingi sendi frá sér rétt í þessu. Tilkynnt var um ráðningu Sifjar þann 14. desember síðastlinn.

Sif Kon­ráðs­dóttirvar aðstoð­ar­maður ráð­herra í um tvo mán­uði.

Sif Konráðs­dóttir var árið 2008 kærð til Lögmanna­félagsins fyrir að greiða barni, sem hún starfaði sem réttar­gæslumaður fyrir, ekki bætur sem dæmdar höfðu verið í Hæstarétti. Kæran var á endanum dregin til baka eftir að annar lögmaður fór í málið og bæturnar fengust greiddar. Guðmundur Ingi sagði í viðtali við Stöð 2  þann 10. febrúar síðastliðinn að hann hefði vitað af málinu áður en Sif var ráðin til starfa og að hann bæri fullt traust til hennar. Hins vegar hafði hann þá ekki fengið staðfest að brota­þolar hafi fengið greitt beint af fjárvörslu­reikningum.

Þá greindi Frétta­blaðið frá því í morgun að umhverfis­ráðherra hefði til meðferðar mál um friðun jarðar í eigu Sifjar, en friðunin gæti komið í veg fyrir lagningu Blöndu­línu 2. Sif hefur barist gegn lagningu línunnar, en hún sagðist í samtali við Frétta­blaðið ekki telja Guðmund Inga vanhæfan í málinu. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár