Spornað gegn viðskiptum með pyntingatól

Verslun með varning til pyntinga fer fram út um allan heim og hefur alþjóða­bandalagi um pyntinga­laus viðskipti verið hleypt af stokkunum vegna þess. Ísland hefur nú gerst aðili að banda­laginu.

Einar Gunnarsson
Einar Gunn­ars­son

Nú hafa 58 lönd, að Íslandi meðtöldu, tekið höndum saman til að stöðva viðskipti með varning sem nýttur er til pyntinga og dauða­refsinga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins.

Alþjóða­bandalagi um pyntinga­laus viðskipti hefur verið hleypt af stokkunum. Ísland gerðist aðili að banda­laginu þann 18. september með þátttöku Einars Gunnars­sonar sendi­herra. Þetta sameiginlega átak Evrópu­sambandsins, Argentínu og Mongólíu, með aðild alls 58 landa, miðar að því að stöðva viðskipti með varning sem beitt er við dauða­refsingar og pyntingar.

Í tilkynningunni kemur fram að samkvæmt alþjóða­lögum séu pyntingar bannaðar undir öllum kringum­stæðum. Þrátt fyrir það fari fram verslun um allan heim með búnað sem er til þess eins að valda kvölum og dauða. Til slíks búnaðar teljast gadda­kylfur, raflosts­belti, griparmar sem veita raflost, efna­sambönd sem notuð eru við aftökur og tilheyrandi búnaður til þvingaðrar lyfja­gjafar.

Gleðiefni að svo mörg lönd taki þátt

Cecilia Malmström, viðskipta­stjóri Evrópu­sambandsins, segir að þessar vörur þjóni engum tilgangi öðrum en að valda skelfi­legum sársauka og drepa fólk. „Við ættum aldrei að heimila verslun með þær eins og hvern annan varning. Nú grípum við til áþreifanlegra aðgerða til að stöðva þessi fyrir­litlegu viðskipti.

Ég hef margoft hitt þolendur pyntinga – flótta­fólk, samvisku­fanga, fanga sem bíða dauða­refsingar. Ég er sannfærð um að nýta megi viðskipta­stefnur landa til að styrkja mann­réttindi um allan heim. Því er mér það mikið gleðiefni að svo mörg lönd skuli taka þátt í yfir­lýsingunni og ganga til liðs við banda­lagið,“ segir hann.

Vilja stýra og takmarka útflutning

Á setningar­athöfninni lögðust 58 lönd um allan heim á eitt, í Afríku, Ameríku, Evrópu og Asíu, með sameiginlegri pólitískri yfir­lýsingu. Með því að undirrita hana hafa löndin sem eiga aðild að banda­laginu samþykkt aðgerðir í fjórum liðum.

Í fyrsta lagi ætla löndin að beita úrræðum til stýringar og takmörkunar útflutnings á vörum sem þessum. Í öðru lagi að veita toll­yfirvöldum viðeigandi viðbúnað en banda­lagið mun koma á laggirnar vettvangi til að fylgjast með viðskipta­flæði, skiptast á upplýsingum og bera kennsl á nýjar vörur. Í þriðja lagi að bjóða löndum heims tækni­legan stuðning við setningu og framkvæmd laga til að banna þessi viðskipti. Og í fjórða og síðasta lagi að skiptast á aðferðum við skilvirka, kerfis­bundna stýringu og framfylgd.

Hertar reglur hefta aðgang að hættulegum varningi

Ennfremur kemur fram í tilkynningunni að ströng löggjöf Evrópu­sambandsins um viðskipti með vörur sem nýttar eru til pyntinga og dauða­refsingar hafi þegar skilað árangri. Hún bannar útflutning á slíkum vörum, ásamt vöru­flutningi þeim tengdum, kynningu, miðlunar­þjónustu og ýmissi aðstoð, og felur í sér flýti­meðferð til að banna nýjar slíkar vörur á markaðnum. Það er meðal annars fyrir tilstilli þessara hertu reglna sem erfiðara hefur orðið að nálgast, og dýrara að kaupa, banvæn sprautulyf.

Hins vegar leggja fram­leiðendur og sölu­aðilar slíks varnings sig fram við að sneiða hjá lögunum. Af þeim sökum verður viðleitnin til að binda endi á viðskiptin því árangurs­ríkari sem fleiri lönd banna þau. Bandalag um pyntinga­laus viðskipti er aðferð til að taka ákveðin skref til að stöðva verslun með þennan varning á alþjóða­vettvangi og gera umtals­vert torsóttara að nálgast hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár