Gjaldmiðlahrun í Noregi og Rússlandi

Gengi rúblunnar rússnesku hefur haldið áfram að falla í dag. Gagnvart Bandaríkjadal hefur rúblan fallið um tæplega 30 prósent, einungis í dag, og virðist sem stýri­vaxtahækkun Seðla­banka Rússlands í gær, um 10,5 í 17, hafi engu breytt en yfir­lýstur tilgangur hækkunarinnar var að vinna á móti falli rúblunnar.

Þá hefur gengi norsku krónunnar fallið svo til stjórn­laust í dag, um sex prósent gagnvart þeirri íslensku þegar þetta er skrifað, og segir stærsti viðskipta­fréttavefur Noregs, www.dn.no, að norska krónan hafi „algjör­lega hrunið“ í dag.

Hrun gjald­miðlanna er meðal annars rakið til gríðarlegas verðfalls á olíu en hún fór í dag í fyrsta skipti frá því í byrjun árs 2009 í undir 60 Bandaríkja­dali á fatið. Frá því júlí hefur olía fallið í verði á heims­mörkuðum um meira en 40 prósent. Olíu­geirinn er grunn­atvinnu­vegurinn í Noregi, og Rússlandi sömuleiðis.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast um þróun mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár