Fólk þarf að finna „aðrar leiðir til að henda leyndarmálunum sínum“

Sorpa hefur bannað notkun á svörtum plast­pokum á endur­vinnslu­stöðvum fyrir­tækisins – og tekið upp þá glæru. Samkvæmt fyrir­tækinu hafa fyrstu dagarnir gengið vel en tilgangurinn er að minnka urðun til muna.

Sorpa hefur ákveðið að „kveðja“ svarta rusla­pokann og taka þess í stað á móti glæra pokanum á endur­vinnslu­stöðvum fyrir­tækisins. Svarta plastpoka­bannið tók gildi þann 1. júlí síðastliðinn en samkvæmt Sorpu er tilgangur bannsins að stuðla að meiri endur­vinnslu og styðja við hringrásar­hagkerfið.

Allur úrgangur og endur­vinnslu­efni þarf því að koma í glærum pokum á endur­vinnslu­stöðvar. Það þýðir að engum úrgangi megi skila í ógagnsæjum pokum á endur­vinnslu­stöðvar Sorpu.

Gunnar Dofri Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og samfélags­virkni hjá Sorpu, segir í samtali við Kjarnann að um sé að ræða alla svarta poka sem koma inn á Sorpu, þar með talið poka undir flöskur og dósir. „Megin­reglan er sú að allt eigi að vera í glærum pokum. Annað væri bara til að flækja hlutina fyrir starfs­fólkið og viðskipta­vinina.“

Mikilvægt að fyrirtæki fari á „þennan vagn“

Krónan greindi frá því í fyrradag að sölu á svörtum rusla­pokum hefði verið hætt í versluninni en glærir rusla­pokar kæmu þeirra í stað. „Tilgangurinn með breytingunni er að stuðla að aukinni endur­vinnslu og að efla hringrásar­hagkerfið en frá deginum í dag eiga viðskipta­vinir Sorpu að koma með allan úrgang og endur­vinnanlegt efni í glærum pokum á endur­vinnslu­stöðvar. Glæru pokunum er ætlað að auðvelda starfs­fólki endur­vinnslu­stöðvanna að aðstoða viðskipta­vini að skila endur­vinnslu­efnum í réttan farveg,“ segir í tilkynningu frá Krónunni.

Gunnar Dofri segir að glæru pokarnir verði ekkert vandamál þegar allir verða komnir á þennan vagn. „Það þarf auðvitað smá hugrekki til að hálfu fyrir­tækis að taka þessa ákvörðun og fara út í þetta en þetta sýnir mikilvægi þess að atvinnu­lífið komi inn í þessi mál og ekki endilega með hlutum sem kosta neitt, heldur til að taka þátt.“

Fólk á væntanlega enn lager heima af svörtum rusla­pokum, hvað á að gera við þá?

„Jú, að sjálfsögðu skellum við ekki á nefið á fólki á degi eitt. Þetta verður stig­vaxandi en því lengur sem líður frá 1. júlí þeim mun minni þolinmæði munum við hafa fyrir svörtum pokum.“

Hefur Sorpa fyrir­myndir varðandi þessa glæru poka?

Gunnar Dofri segir að glærir pokar hafi verið notaðir í Danmörku til margra ára. „Maður heyrir í vinum og kunningjum í Danmörku sem hósta og spyrja: „Ha, eruð þið ennþá að nota svarta poka á endur­vinnslu­stöðvum? Hvað eruð þið að pæla?“ Þannig að við erum þessum hefð­bundnu 10 árum á eftir með allt.“

Glæru pokarnir ekki umhverfisvænni en þeir svörtu

Eru fleiri ástæður en sjáanleiki fyrir því að skipta yfir í glæra poka?

Hann segir að í sjálfu sér séu glæru pokarnir ekki umhverfis­vænni en þeir svörtu. „Þeir koma út á sléttu með þetta. Við höfum fengið boð frá fyrir­tækjum erlendis um að breyta plastinu okkur í gagnsæja poka. Þannig að glærir pokar geta verið úr tærri endur­vinnslu­afurð en tilgangurinn er fyrst og fremst að hjálpa okkar fólki að leiðbeina um hvað eigi að fara hvert.“

Bendir hann enn fremur á að glæru pokarnir nýtist flestum betur. „Til dæmis þegar maður fer að taka til í geymslunni þá er það mikið betra fyrir mann að vera með hlutina í glærum pokum svo maður sjái hvað er í þeim og þurfi ekki að opna þá. Þannig að þegar fólk kemur á stöðvarnar þá veit það hvað er í pokunum og þarf ekki að rífa þá upp.“

Þá er eins gott að fólk sé ekki með „leyndó“ í glæru pokunum?

„Já, það þarf þá að finna einhverjar aðrar leiðir til að henda leyndar­málunum sínum,“ segir hann kíminn.

Ódýrara fyrir samfélagið að urða minna

Gunnar Dofri segir að fyrstu dagarnir hafi gengið ágætlega. Fólk taki þessum breytingum vel.

„Það er í sjálfu sér engin ástæða til að hafa poka ekki gagnsæja. Við sjáum það allavega ekki. Við erum líka ekki að gera þetta að gamni okkar, við förum ekki út í þetta bara vegna þess að við viljum það heldur er grundvallar­ástæðan fyrir því að við viljum fá allt í glæru svo helmingurinn af því sem er hent í urðunar­gáminn geti farið á betri stað – í endur­vinnslu eða jafnvel endurnot hjá Góða hirðinum. Þannig að þetta er fyrst og fremst hugsað sem aðgerð í þágu umhverfisins og hringráðsarhagkerfisins.

Svo er þetta ódýrara fyrir samfélagið því Sorpa og endur­vinnslu­stöðvarnar eru reknar fyrir útsvar íbúa á höfuð­borgar­svæðinu og þeir þurfa að greiða fyrir það sem verður um úrganginn. Þannig að því minna sem þarf að fara í urðun, og síðan brennslu þegar við hættum að urða, því ódýrara.“

Hann segir að í full­komnum framtíðar­heimi myndu Íslendingar ekki urða eitt gramm en því miður sé þó ólíklegt að af því verði. „En það er stefnan. Við viljum ekki urða,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár