Sigmundur Davíð borgaði rúmlega helmingi minna í skatta í ár heldur en í fyrra

For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, greiddi um átta millj­ónir króna í opin­ber gjöld á árinu 2014. Það er rúm­lega helm­ingi minna en hann greiddi árið 2013 þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann greiddi alls 18,1 milljón króna í opin­ber gjöld. Helsta ástæða þess að greiðslur hans lækka jafn mikið á milli ára og raun ber vitni er sú að auð­legð­ar­skattur er ekki lengur í gildi á Íslandi, en hann greiddu ein­stak­lingar sem eiga meira en 75 millj­ónir króna í hreinni eign eða hjón sem áttu yfir 100 millj­ónir króna. Sig­mundur Davíð og eig­in­kona hans voru þar á meðal.

Aust­ur­frétt greinir frá þessu og hefur upp­lýs­ingar um greiðslur for­sæt­is­ráð­herra úr álagn­inga­skrám á Fljóts­dals­hér­aði, en Sig­mundur Davíð er skráður með lög­heim­ili á Hrafna­björgum í Jök­ulsár­hlíð. Í frétt mið­ils­ins segir að Sig­mundur Davíð hafi verið í 15. sæti yfir þá sem greiddu hæstu opin­beru gjöldin á Aust­ur­landi árið 2013 en að hann hafi ekki kom­ist inn á lista yfir 20 hæstu greið­end­urna vegna árs­ins 2014.

Þar segir einnig að sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám hafi Sig­mundur Davíð borgað um átta millj­ónir í skatta í ár, þar af 2,76 millj­ónir í útsvar og 5,12 millj­ónir í tekju­skatt. Í fyrra hafi hann hins vegar greitt 2,3 millj­ónir í útsvar, átta millj­ónir í tekju­skatt og 7,8 millj­ónir í auð­legð­ar­skatt sem ekki er lengur til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár