Fullyrt að stjórnvöld hafi breytt reglugerð til að aðstoða Pussy Riot eftir beiðni Ragnars

Mikil leynd hefur ríkt yfir því hverjir hafa fengið útgefin sér­stök íslensk vega­bréf á grund­velli reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem und­ir­rituð var í vor. Nú er full­yrt að hennii hafi verið breytt eftir að Ragnar Kjart­ans­son leit­aði til Katrínar Jak­obs­dóttur.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Hin rúss­neska Maria Alyok­hina, aðgerð­ar­sinni og liðs­kona rúss­nesku pön­k­rokk­sveit­ar­innar Pussy Riot, fékk útgefið sér­stakt vega­bréf á Íslandi á grund­velli reglu­gerðar sem sam­þykkt eftir beiðni Ragnars Kjart­ans­sonar mynd­list­ar­manns til íslenskra stjórn­valda þar um. Frá þessu er greint í Stund­inni í dag. Þar segir að fjöl­mið­ill­inn hafi heim­ildir fyrir því að Ragnar hafi leitað til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um aðstoð við að tryggja Alyok­hina íslenskt vega­bréf og það hafi leitt til þess að reglu­gerðin var sett.

Ragnar vildi hvorki játa því né neita í sam­tali við Stundina hvort Katrín hefði verið á meðal þeirra sem hann hafi þurft að sann­færa til að hægt væri að gefa út sér­stakt vega­bréfa fyrir Alyok­hina. For­sæt­is­ráðu­neytið neit­aði að tjá sig um mál­efni ein­stak­linga í svari til Stund­ar­innar en þar sagði að for­sæt­is­ráð­herra sam­gleðj­ist „bæði Mariu Alyok­hina og félögum hennar í Pussy Riot að þau hafi tæki­færi til þess að nýta sér list­rænt og póli­tískt tján­ing­ar­frelsi sitt.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið neit­aði líka að tjá sig efn­is­lega um málið.

Heim­ild ráð­herra til að gefa út leyni­leg neyð­ar­vega­bréf

Umrædd reglu­gerð var und­ir­rituð 26. apríl síð­ast­lið­inn. Í henni felst að Þór­­dís Kol­brún Reyk­­fjörð Gylfa­dóttir utan­­­rík­­is­ráð­herra má nú óska þess að Útlend­inga­­stofnun gefi út vega­bréf til útlend­ings „ef sér­­stakar ástæður eru fyrir hend­i“.

Í reglu­gerð­inni er sér­­stak­­lega tekið fram að hægt sé að láta útlend­ing fá slíkt neyð­­ar­­vega­bréf jafn­­vel þótt hann sé ekki lög­­­lega búsettur hér­­­lend­­is. Ut­an­­rík­­is­ráð­herra má nú líka fela send­i­­skrif­­stofum Íslands og kjör­ræð­is­­mönnum að gefa út neyð­­ar­­vega­bréf til útlend­ings til allt að eins mán­að­­ar.

Kjarn­inn óskaði í maí eftir upp­­lýs­ingum um hversu mörg vega­bréf hefðu verið gefin út á þeim tæpa mán­uði sem lið­inn var síðan að reglu­­gerðin tók gildi og hvenær þau voru útgef­in.

Ráðu­­neytið neit­aði að svara þeirri fyr­ir­­spurn með vísum í 9. og 10. grein upp­lýs­inga­laga. Kjarn­inn telur að hvorug greinin eigi við um þá upp­lýs­inga­beiðni sem send var, enda snýst hún um óper­sónu­grein­an­lega töl­fræði.

For­dæmi er fyrir því að utan­­­rík­­is­ráðu­­neytið veiti per­­són­u­­grein­an­­legar upp­­lýs­ingar um ein­stak­l­inga sem hafa fengið sér­­­stök vega­bréf. Það gerð­ist haustið 2005 þegar Mörður Árna­­son, þáver­andi þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, spurði Geir H. Haarde, þáver­andi utan­­­rík­­is­ráð­herra, um þá ein­stak­l­inga sem höfðu ann­­ars vegar diplómat­ísk vega­bréf og hins vegar svokölluð þjón­ust­u­­vega­bréf. Geir birti lista með nöfnum allra þeirra ein­stak­l­inga í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Marðar á Alþing­i.

Kæra verið til meðferðar í 200 daga

Kjarninn kærði ákvörðun utan­rík­is­ráðu­neytið um að svara ekki fyr­ir­spurn hans til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Þar hefur málið nú verið til með­ferðar síðan 23. maí, eða í 200 daga. Samkvæmt lögum á nefndin að birta úrskurð í málum að jafn­aði innan 150 daga frá því að kæra er mót­tekin.

Í umsögn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um kæru Kjarnans, sem skilað var inn í júní, kom fram að ráðu­neytið teldi hættu á að opin­ber umfjöllun um hversu mörg íslensk vega­bréf hafi verið útgefin til erlendra ein­stak­linga á grund­velli nýlegrar reglu­gerðar gæti vakið athygli erlendra stjórn­valda, sér í lagi stjórn­valda í heima­landi þess erlenda ein­stak­lings sem fær útgefið íslenskt vega­bréf af sér­stökum ástæð­um. „Ekki er hægt að úti­loka nei­kvæð við­brögð við­kom­andi erlendra stjórn­valda, á alþjóða­vett­vangi, gagn­vart íslenskum hags­munum [...] ef þau frétta af vega­bréfa­út­gáfu til rík­is­borg­ara sem e.t.v. hafa flúið landið vegna ógnar sem þau hafa orðið fyr­ir.“

Þar sagði einnig að afhend­ing upp­lýs­ing­anna sem um ræði gæti haft skað­leg áhrif á tengsl Íslands við önnur ríki sem myndi stofna hags­munum íslenska rík­is­ins í hættu. „Þá er ekki hægt að úti­loka að umfjöllun um útgáfu íslenskra vega­bréfa af sér­stökum ástæðum geti haft nei­kvæð áhrif á til­trú og trú­verð­ug­leika íslenskra vega­bréfa.“

Kjarninn sendi úrskurð­ar­nefnd­inni athuga­semdir við umsögn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem öllum for­sendum hennar um synjun á umbeð­inni töl­fræði var hafnað.

Frambjóðandi Vinstri grænna

Ýjað hefur verið að því áður að Ragnar Kjart­ans­son hafi verið örlaga­valdur í því að umrædd reglu­gerð var sett og að til­gangur hennar hafi fyrst og síð­ast verið að aðstoða með­limi Pussy Riot, þótt það hafi ekki verið full­yrt með vísun í heim­ildir líkt og gert er í Stund­inni í dag.

Þann 11. maí birt­ist umfjöllun í New York Times um að Ragnar, sem var fram­bjóð­andi Vinstri grænna í síð­ustu kosn­ing­um og hefur verið leikið í kosn­inga­aug­lýs­ingum fyrir flokk­inn ásamt því að styðja Katrínu Jak­obs­dóttur á opin­berum vett­vangi, hefði aðstoðað Alyok­hina á flótta sínum frá Rúss­landi. Í umfjöll­un­inni kom fram að Ragnar hefði fengið ónefnt Evr­ópu­land til að gefa út ferða­skil­ríki sem veitti Alyok­hina sömu stöðu og íbúar Evr­ópu­sam­bands­ins. Ferða­skil­ríkj­unum var smyglað inn til Hvíta-Rúss­lands svo hún gæti notað þau til að kom­ast þaðan og yfir til Lit­há­ens.

Mbl.is og fleiri fjöl­miðlar settu reglu­gerð­ar­breyt­ing­una sem var gefin út í apríl í sam­hengi við þetta mál.

Alyok­hina not­aði í kjöl­farið þessi nýju ferða­skil­ríki til að Pussy Riot gæti haldið tón­leika­ferð í Evr­ópu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár