Eftir stanslausar lækkanir undanfarna mánuði hækkaði olíuverð allt í einu um 20 prósent á fjórum dögum. Verð á hráolíu lækkaði á nýjan leik í dag, en nú fer fram mikil umræða um það hvort botninum hafi verið náð eða ekki, og hvað sé framundan í þessum málum.
Á föstudag var hráolíutunnan komin niður í 44 Bandaríkjadali, en í gær fór verðið upp í 58 dali. Í dag hefur verðið lækkað á nýjan leik og þegar þetta er skrifað er Brent hráolíutunna seld á um það bil 55 dali.
Believe it or not, oil is in a bull market http://t.co/0B5zzCOl3J pic.twitter.com/Pw73cZeT03
— Quartz (@qz) February 3, 2015
Þrátt fyrir að hafa hækkað er hráolíuverð samt 50 prósentum lægra en það var síðastliðið sumar. Offramboð á olíu, sem hefur haft mikil áhrif á þróunina undanfarna mánuði, er síst á undanhaldi. OPEC ríkin juku sína framleiðslu í desember og Bandaríkjamenn halda áfram leirsteinsolíuframleiðslu sinni. Hins vegar hefur undanfarið verið dregið úr fjárfestingum hjá stórum fyrirtækjum, eins og
BP
. Þá hefur vinnu á olíuborpöllum verið hætt víða undanfarið, ekki síst í Bandaríkjunum, sem venjulega er talin ágæt vísbending um ástandið.
Þá er síður en svo samhljómur um það hvort botninum í hráolíuverði hafi verið náð eða ekki. Foreign Policy telur að líklega hafi botninum verið náð í síðustu viku. Yahoo Finance fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum að það sé hreinlega ekki vitað hvað er framundan, hægt sé að færa rök fyrir báðum hliðum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir