Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman yfirlit yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum nákvæmlega núna. Það er ágætt fyrir íslenska frétta­neytendur að taka sér frí frá fréttum um meintan fjárdrátt Björgvins G. Sigurðs­sonar og áhyggjum af umræðunni um múslima á Íslandi og kynna sér hvað er að gerast utan landamæra Íslands.

Tíu mikil­vægustu hlutirnir í heiminum í dag eru:


  1. Kínverski hlutabréfa­markaðurinn er að upplifa sinn versta dag frá árinu 2008. Ástæðan er hertara regluverk sem gerir spákaupmönnum erfiðara fyrir.

  2. Belgar hafa beðið Grikki um að framselja ein þeirra fjögurra sem eru í haldi í tengslum við ætlaða hryðjuverka­árás gegn belgísku lögreglunni sem komið var í veg fyrir.

  3. Tugþúsundir tóku þátt í mótmæla­göngu í rússneska sjálf­stjórnar­lýðveldinu Téténíu gegn mynd franska skop­mynda­blaðsins Charlie Hebdo af Múhameð spámanni.

Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni hafa valdið mikilli ólgu víðsvegar um heiminn.

Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni hafa valdið mikilli ólgu víðsvegar um heiminn.
Teikn­ingar Charlie Hebdo af Múhameð spá­manni hafa valdið mik­illi ólgu víðs­vegar um heim­inn.

Frans páfi lauk viku­langri ferð sinni um Asíu með því að halda opna messu í Manila, höfuðborg Filips­eyja, í gær. Alls mættu um sjö milljónir manns til að hlýða á hann.

Boko Haram hafa rænt um 80 manns eftir árásir á þorp í norður­hluta Kamerún.

Bandaríska leyni­þjónustan braust inn í tölvu­kerfi Norður-Kóreu áður en árásirnar á tölvu­kerfi kvikmynda­fram­leiðandans Sony Pictures voru gerðar. Þetta fullyrða fyrrum embættis­menn.

Hátt­settir menn innan Hezbollah- samtak­anna og íranska hersins hafa fallið í loft­árásum Ísraela á Sýrland.

Oxfam góðgerðar­samtökin fullyrtu í morgun að ríkasta eitt prósent mannkyns muni eiga helming alls auðs í heiminum á næsta ári.

Evrópu­sambandið ætlar að áfrýja nýlegum úrskurði sem í fólst að sambandið geti ekki lengur sett Hamas á lista yfir hryðju­verkar­samtök.

Seattle Seahawks munu mæta New England Patriots í Super Bowl-leiknum í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár