Orri Páll þingflokksformaður Vinstri grænna

Orri Páll Jóhannsson var í dag valinn þing­flokks­formaður Vinstri grænna. Bjarni Jónsson verður ritari þing­flokksins.

Orri Páll Jóhannesson er nýr þingflokksformaður Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhann­es­son er nýr þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Aðsend

Orri Páll Jóhannsson var í dag val­inn af þing­flokk­i Vinstri grænna til að gegna stöðu þing­flokks­formanns. Orri Páll er nýr þingmaður Vinstri grænna, en var áður vara­þingmaður flokksins frá árinu 2016.

Hann var pólitískur aðstoðar­maður Guðmundar Inga Guðbrands­sonar umhverfis- og auðlinda­ráðherra á síðasta kjör­tímabili og var í 2. sæti á lista flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður í kosningunum í haust.

Orri Páll tek­ur við for­mennsk­u í þing­flokknum af Bjarkey Olsen Gunnars­dóttur, sem verður vara­formaður þing­flokksins. Hún hef­ur setið á Alþingi frá árinu 2013.

Á þing­flokksfundi Vinstri grænna í dag var Bjarni Jónsson svo valinn ritari þing­flokksins. Bjarni var áður vara­þingmaður en tók sæti á Alþingi nú í haust. Hann er oddviti flokksins í Norðvestur­kjördæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár