Freyr Eyjólfs skrifar frá París: Háðsádeilublaðið Charlie Hebdo

Viku­tímaritið Charlie Hebdo er þekkt fyrir að hæðast og hlæja að öllu. Blaðið hefur veitt sér það frelsi að hæðast að trúar­brögðum: kaþólsku kirkjunni, kristni, gyðinga­dómi, íslam; sem og stjórn­málamönnum, forsetum, þing­mönnum, kóngum og drottningum og menningar­elítunni. Í Charlie Hebdo eru ádeilu­greinar, háð, brandarar, svívirðilegar skop­myndir með hárbeittu gríni. Blaðið á sér rúmlega 40 ára sögu.

Freyr Eyjólfsson.

Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyj­ólfs­son.

Skrif­stofur blaðsins, þar sem árásirnar fóru fram í dag, eru í 11. hverfi Parísar sem er stærsta fjöl­menningar­hverfi Evrópu. Áður var gerð sprengju­árás á þessum slóðum í nóvember 2011 eftir að blaðið birti skop­myndir af Múhameð. Ári síðar birti svo blaðið mjög umdeildar myndir af spámanninum nöktum. Charlie Hebdo hefur sömuleiðis birt myndir Jesús og Guði í annarlegum kynferðis­legum stellingum; í raun farið alla leið í sínu ádeilu­gríni.

Beitt og gróft ádeilu­grín er stór partur af franskri menningu og má rekja allt aftur í aldir. Þekktustu skopmynda­teiknarar Frakk­lands liggja nú í valnum í Charlie Hebdo árásinni: Cabu, Charb, Tignous, og Wolinski.

Enn veit enginn hver ber ábyrgð á þessum hryllingi – margir óttast hins vegar afleiðingarnar. Sér í lagi ef að herskáir múslimar eru að baki þessu ódæði. 99,9 prósent allra múslima í París er friðsamt fólk - fjölmargir múslimar hafa formdæmt fjölda­morðin. Fjölda­morðin gætu samt hugsanlega ýtt undir íslam­fóbíu.

Gríðarleg öryggis­gæsla er nú í París.

Gríðarleg öryggisgæsla er nú í París.
Gríð­ar­leg örygg­is­gæsla er nú í París.

Öryggis­gæsla hefur verið hert í kringum verslanir, samgöngu­stöðvar, trúar­byggingar og fjölmiðla. Franska herlögreglan er á hverju götuhorni þessa stundina. Hryðjuverka­árás hefur lengi legið í loftinu í París – margar og ítrekaðar hótanir – og nú hefur það gerst sem margir hafa óttast. Allir sem tjá sig um þennan hryling hafa samt hamrað á því að þessi árás muni ekki breyta frönsku samfélagi; helstu gildi og hugsjónir lýðveldisins eru enn í fullu gildi: frelsi, jafnrétti og bræðralag. Málfrelsið og tjáninga­frelsið eru enn í öndvegi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár