Segir Hersh hafa smíðað samsæriskenningu um dauða bin Laden

Blaða­maðurinn Max Fisher hjá frétta­miðlinum Vox, sakar rannsóknar­blaða­manninn Seymour M. Hersh um að hafa smíðað samsæris­kenningu um morðið á Osama Bin Laden. Hersh, sem er heims­þekktur blaða­maður og hefur meðal annars hlotið Pulitzer verð­launin fyrir umfjöllun sína um My Lai fjölda­morðin í Víetnam, skrifar mikla grein sem birtist á vefsíðu The London Review of Books, þar sem hann fullyrðir að morðið á Bin Laden hafi gerst öðruvísi en bandarísk stjórn­völd hafi látið í veðri vaka til þess. Skrif Hersh hafa vakið athygli á heimsvísu, enda um þunga­vigtar blaðamann að ræða. Kjarninn fjallaði um greinina hans í dag.

Í grein sinni segir Hersh að pakistanski herinn hafi vistað Bin Laden í stofu­fangelsi í Abbotabad frá árnu 2006, og hafi ekki einungis vitað hvar leiðtoga al-Kaída var að finna heldur sömuleiðis þegið greiðslur frá Sádi-Arabíu vegna uppihalds. Þá hafi Bin Laden sömuleiðis ekki veitt bandarísku sérsveitar­mönnunum mótspyrnu, heldur verið drepinn óvopnaður í svefn­herberginu sínu. Loks fullyrðir Hersh að illa förnu og sundur­limuðu líki Bin Laden hafi verið kastað út úr þyrlunni sem flutti bandarísku hermennina aftur til Afganistan, í hlutum yfir fjall­lendi en ekki í sjóinn eins og hefur verið haldið fram til þessa.

Blaða­maður Vox gagnrýnir skrif Hersh harðlega og segir þau ekki standast skoðun. Greinin, sem sé hinn versta hrákasmíð, sé að mestu leyti byggð á tveimur heimilda­mönnum, öðrum nafn­lausum, innan úr pakistanska hernum, sem hafi látið af störfum fyrir nokkrum árum síðan. Þá vanti í frásögn Hersh haldbærar og trúverðugar sannanir fyrir því sem hann beri á borð með skrifum sínum.

Fisher gefur lítið fyrir kenningar Hersh um að samstarf Banda­ríkjanna og Pakistans hafi verið að ræða, enda hafi samskipti þjóðanna kulnað mjög eftir að upp komst um að leiðtogi al-Kaída héldi til í Pakistan, beint fyrir framan nefið á heima­mönnum, sem þótti sömuleiðis mjög pínleg staðreynd fyrir þá.

Þá veltir Fisher upp þeirri spurningu, af hverju pakistönsk stjórn­völd skyldu vilja að taka þátt í leik­stýrði árás á Bin Laden, með tilheyrandi álitshnekk fyrir þjóðina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár