Það sem þú hefur lesið um morðið á bin Laden er mjög líklega lygi

Skömmu eftir að Osama bin Laden féll fyrir byssu­kúlum bandarískra sérsveitar­manna í Pakistan í maímánuði árið 2011, birtust fréttir af hetjudáð hermannanna og nákvæm lýsing á morðinu á eftir­lýstasta manni jarðar fylgdi skjótt í kjölfarið. Samkvæmt nýrri og athyglis­verðri grein rannsóknar­blaða­mannsins Seymour M. Hersh, sem birtist í The London Review of Books, eru allar líkur á að morðið hafi átt sér stað öðruvísi en bandarísk stjórn­völd hafa látið í veðri vaka.

Í stofufangelsi í Pakistan


Samkvæmt grein Hersh var Osama bin Laden í haldi pakist­anska hers­ins, en fór ekki huldu höfði í Pakistan, eins og haldið hefur verið fram. Þá var Bin Laden vistaður í stofu­fang­elsi, og pakist­anski her­inn vissi ekki bara hvar hann var heldur þáði greiðslur frá Sádi-Arabíu vegna uppi­halds leiðoga al-Kaída hryðju­verka­sam­tak­anna.

Hersh fullyrðir í grein sinni að það sé uppspuni bandarískra stjórn­valda að upplýsingarnar sem leiddu til aftöku bin Laden hafi náðst fram með hörðum yfirheyrslum og pyntingum með vatns­bretti, eins og greint er frá í kvik­myndinni Zero Dark Thirty. Hið rétta sé að maður hafi gengið inn af götunni og sagt bandarískum embættis­mönnum í Pakistan hvar bin Laden væri að finna, og fékk í sinn hlut 25 milljóna dala fundar­laun.

Tilbúinn hasar


Í kjöl­far morðs­ins á bin Laden komust sögur af því hvernig banda­rískir sér­sveit­ar­menn skutu sér leið inn í „fylgsni“ hans í hámæli. Bin Laden átti meira segja að hafa skotið að banda­rísku her­mönn­unum, slíkur var hasar­inn. Samkvæmt grein Hersh er þetta ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, sér­sveit­ar­mönn­unum beið engin mót­staða, heldur lædd­ust þeir hljóð­lega upp í svefn­her­bergi bin Laden og tóku af lífi þar sem hann dvaldi óvopn­aður.

Þá telur Hersh afar ólíklegt að útför bin Laden hafi farið fram út á sjó, líkt og haldið hefur verið fram. Líklegra sé að líki hans hafi verið kastað út úr þyrlunni sem flutti bandarísku sérsveitar­mennina aftur til Afganistan, yfir fjall­lendi.

Fyrri greinar byggðar á upplýsingum frá hernum og Hvíta húsinu


Seymour M. Hersh, sem hlaut Pulitzer verð­launin fyrir umfjöllun sína um My Lai fjöldamorðin í Víetnam, hefur skrifað um banda­ríska her­inn í áraraðir og birt greinar sínar reglu­lega í The New Yorker frá árinu 1993.

Í tíma­ritinu birtist grein árið 2011 undir fyrir­sögninni Getting Bin Laden, eftir blaða­manninn Nicholas Schmidle, sem er sonur yfirmanns hjá bandaríska hernum. Í umræddri grein var farið nákvæmlega yfir morðið á Bin Laden, og meira segja haft eftir sérsveitar­manninum sem skaut Bin Laden hvað hann sagði þegar hryðju­verka­maðurinn féll í valinn. Síðar kom í ljós að Schmidle hafði aldrei talað við neinn sérsveitar­mann sem tók þátt í aðgerðinni, heldur byggt greinina sína einvörðungu á upplýsingum frá hernum og innan úr Hvíta húsinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár