Fjármálaráðherra Grikklands segist nálægt samningi við ESB og AGS

Fjármála­ráðherra Grikk­lands, Yanis Varoufakis, segist telja að Grikkir komist að samkomu­lagi við lánardrottna sína, Evrópu­sambandið, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn, á næstu klukku­stundum eða dögum. Þetta samkomulag muni gera öllum ljóst að Grikkland geti starfað innan ramma laga og reglna og muni jafnframt útkljá vandræði Grikk­lands fyrir fullt og allt.

Þetta sagði fjármála­ráðherrann í viðtali á Channel 4 í Bretlandi nú seinni partinn. Varoufakis er staddur í London þar sem hann fundaði fyrr í dag með George Osborne, fjármála­ráðherra Bretlands.

Greece's finance minister tells me he expects a deal with Eurozone "within hours or days": http://t.co/NI66R4UAJZ - 5 minute video

— Paul Mason (@paulmasonnews) February 2, 2015

Átök stærsta ógnin við alþjóðahagkerfið

Osborne telur að ef komi til átaka milli Grikk­lands og evru­ríkjanna gæti það orðið stærsta ógnin við alþjóða­hagkerfið. Þetta sagði hann eftir fund með Varoufakis í London í dag.

Varoufakis er á ferðalagi um Evrópu til þess að afla stuðnings við málstað Grikkja, sem vilja endur­semja við Evrópu­sambandið og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn um heimtur á lánum.

Eftir fund Osborne og Varoufakis í London í dag sagðist Osborne hafa hvatt Varoufakis til þess að vera skynsamur, en jafnframt hefðu þeir rætt um mikilvægi þess að evruríkin hrintu í framkvæmd betri áætlunum um hagvöxt og sköpun starfa. Hann hvatti eindregið til þess að komist verði að samkomu­lagi.

Varoufakis talaði við ráðamenn í Frakk­landi í gær og heldur nú til funda við Matteo Renzi forsætis­ráðherra Ítalíu og við Jean-Claude Juncker forseta framkvæmda­stjórnar ESB. Juncker og Varoufakis munu funda í Brussel á miðvikudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár