Heitavatnsnotkun aldrei verið meiri í nóvember

Kalt hefur verið í veðri undan­farnar vikur og hefur heita­vatnsnotkun því aldrei verið meiri í nóvember.

Aldrei hefur meira verið notað af vatni úr hitaveitu Veitna á höfuð­borgar­svæðinu í nóvember­mánuði en nú í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrir­tækinu. 

Skýringuna telja þau vera að mánuðurinn hafi verið frekar kaldur og storma­samur undir lokin. Um 90 prósent af heita vatninu fer til húshitunar og í nóvember runnu tæpir níu milljarðar lítra af heitu vatni inn í hús frá Hafnar­firði í suðri til Mosfells­bæjar í norðri. Það er 15 prósent meira magn en sama mánuð í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum á vef Veður­stofunnar var nóvember kaldur. Meðalhiti í Reykjavík mældist 0,2 stig, -0,9 stigum neðan meðallags áranna 1961 til 1990 og -2,6 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Augljóst samhengi er því á milli tíðar­farsins og heita­vatns­notkunarinnar.

Íslensk heimili nota árlega að meðaltali 4 til 5 tonn af heitu vatni á hvern fermeter húsnæðis. Í tilkynningunni segir að til að spara og lækka reikninginn hjá sér sé líklegt til árangurs að hafa hitakerfi og ofna rétt stillt fremur en til dæmis að fækka baðferðum. Ein baðferð kosti ekki mikið en hundrað- og þúsund­kallarnir geti fljótt safnast upp ef bilun er í kerfi, ofnar rangt stilltir, illa einangrað eða gluggar sífellt upp á gátt.

Heita vatnið sem notað er á höfuð­borgar­svæðinu kemur annars vegar frá lághita­svæðum í Mosfellsbæ og Reykjavík, nánar tiltekið í Laugarnesinu og Elliða­árdal og hins vegar frá háhita­svæðum á Nesja­völlum og nýjasta viðbótin kom á árinu 2010 þegar heitavatns­framleiðsla hófst í Hellis­heiðar­virkjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár