Hollywood 2014

Það má mögulega vera að Sony-lekinn sé enn þá svo fersk frétt að hún virðist vera við fyrsta yfirlit sú stærsta úr Hollywood í ár. Ég er búin að fara lauslega yfir árið og það voru nokkur atriði sem svo sannarlega stóðu upp úr á árinu en Sony lekinn er stærsta málið. Helsta ástæða þess að þetta er stærsta fréttin er það sem við vitum ekki um lekann.

Rekjum málið í grófum dráttum. 17.desember síðastliðin gáfu bandarísk stjórn­völd í skyn að Norður-Kórea hafi átt lykilþátt í Sony „hakkinu“. Strax daginn eftir stígur Josh Earnest, fjölmiðla­fulltrúi Hvíta hússins, fram og kallar „hakkið“ alvarlegt þjóðar­öryggismál. Washington Post stuttu síðar segir að Norður Kórea hafi á prjónunum hryðjuverka­hótanir og muni ógna bíófarendum sem voga sér að fara á myndina „The Interview“. Um er að ræða kjánalega grínmynd þar sem Kim Jong Un er ráðinn af dögum og er megin ástæða reiði vegna hennar að baki lekans, svo er talið þegar þetta er ritað. Norður Kórea neitar allri sök opinber­lega en alríkis­lögreglan FBI segist geta staðfest að „hakkið“ sé sannarlega frá þeim komið.

Allir topparnir hjá Sony skulfu í buxunum og hvert bíóhúsið á fætur öðru hætti við að sýna myndina. Þetta endaði með ákvörðun um að taka myndina af dagskrá alfarið en áætlaður frum­sýningar­dagur var 25.desember. Ótti bíóhús­anna var rökstuddur þannig að ef einhver slys yrðu á bíógestum þá færu þeir í mál við bíóhúsið og bíóhúsið færi þá í mál við Sony fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir hryðjuverka­árásir. Hlutirnir æxluðust mjög hratt og Obama sá sig tilneyddan til að gefa út yfir­lýsingu þar sem hann lýsti yfir vonbrigðum sínum á Sony fyrir að hafa tekið myndina af dagskrá. Hann hefði viljað að þeir hefðu talað við sig fyrst því að Banda­ríkin lúffa ekki fyrir hryðjuverka­hótunum og semja ekki við glæpamenn með hótunum.

Umræðan um að sýna myndina eða ekki náði hæstu hæðum sem endaði með því að hún var sýnd og fólk mætti með ameríska fánann og sýndi samstöðu með myndinni. Myndin gat væntanlega ekki fengið betri ókeypis auglýsingu og áður en hún kom út var hún orðin að eins konar frelsis­hetju, hold­gervings frelsins. Fyrir vikið er núna önnur umræða komin í gang sem er: Var þetta allt planað? Var þessi leki alvöru hótun frá Norður Kóreu eða massíf fjölmiðla­áhætta sem Sony tók? Ég hallast sjálf að því að þetta hafi verið „hakk“ og árás á Sony kvikmynda­verið því að vandræða­legir rafpóstar frá Amy Pascal, yfirmanni Sony, til annarra toppa og leikara hafa sannarlega ekki hjálpað neinum þar innanhúss og hreinlega orðið til þess að fólk var látið fjúka.

Það er vitað mál í verk­færa­kassa blaða­full­trú­ans hérna að smella inn fréttum af skiln­aði skjól­stæð­inga sinna um jólin.

Ég á bágt með að trúa því að þeir myndu taka slíka áhættu enda miklir fjármunir í húfi fyrir að sýna myndina ekki og mikið högg á almennings­áliti gagnvart Sony. Annað sem er verið að ræða er að mögulega sé þetta fyrr­verandi starfs­maður Sony og er staðfest að kona sem var hátt sett í tölvu­deild þeirra hafi verið rekin á árinu. Samkvæmt sögu­sögnum var hún feikilega fær og algjör­lega búin þeim hæfi­leikum og starfs­reynslu til að leka út rafpóstunum til að koma höggi á sinn gamla vinnustað. Ef þetta er hins vegar „stunt“ frá A-Ö og það kemst upp er víst að það sé skaði sem Sony kvikmynda­verið mun aldrei geta heilt frá gegnið.

Skilnaðir á árinu


Skiln­að­ar­aldan er sjaldan stök hérna í borg englanna og eng­inn sem sleppur undan henni að manni virð­ist. Flest hjóna­bönd stjarn­anna enda í skiln­aði og þau örfáu sem halda verða að ævin­týr­an­legum fyr­ir­myndum eins og Paul Newman og frú. Það er vitað mál í verk­færa­kassa blaða­full­trú­ans hérna að smella inn fréttum af skiln­aði skjól­stæð­inga sinna um jólin. Þetta er gert vilj­andi til að drekkja frétt­inni í súp­unni af jóla­fréttum og fári. Og árið í ár er engin und­an­tekn­ing.

Clint Eastwood og frú skildu núna í des eftir 19 ára hjónaband. Kannski var það stóla ræðan hans á þingi Republikana sem gerði útslagið hjá Dinu. Íslands­vinurinn, Neil Young skildi við Pegi Young eftir 37 ára hjónaband og hoppaði beint í glænýtt samband með leik­konunni Darryl Hannah, en á milli þeirra er nú reyndar ekki nema 15 ár. Söng­fuglinn Mariah Carey og Nick Cannon skildu líka þetta árið en þau höfðu nánast lifað í sundur í lengri tíma enda Nick ofsalega upptekinn af því að vinna í America´s got talent. Saman eiga þau tvíburana Marilyn og Morrocan, jebb strákurinn heitir Morrocan.

Sérstakasti skilnaður ársins er “huglæga afpörunin” hjá leik­konunni Gwyneth Paltrow og Chris Martin úr Coldplay. Hún skellti fram þessu hugtaki „afpörun“ þar sem þeim þætti ógurlega vænt um hvort annað og ætla að eiga fjöl­skylduna sína áfram án þess að þau tvö séu par lengur. Hann grét ekki lengi í koddann sinn og fór að hitta Jennifer Lawrence. Antonio Banderas og Melenie Griffith skildu eftir 18 ár af hjóna­bandi en það lifði mun lengur en flest alla grunaði en hjóna­bandið þeirra hefur verið hundelt af fjöl­miðlum og sögu­sögnum um að endalokin væru nálægt. Allra nýjasta parið sem sem féll í valinn rétt fyrir jól eru þau Helena Bonham Carter og Tim Burton en þau voru saman í 13 ár en giftu sig aldrei.

Elevator Gate


Skandall árs­ins sam­kvæmt mínum stöðlum er lyftu­óperan á Met gala góð­gerð­ar­kvöld­inu í New York í maí­mán­uði á árinu sem er að líða. Við nátt­úru­lega erum ekk­ert að tala um neina for­sendu­bresti, afsagnir ráð­herra eða neitt slíkt heldur erum við að tala um Solange Knowles, systir Beyoncé.

Drauma­parið Beyoncé og Jay Z fóru á þetta fína ball og eftir að því var lokið fara þau 3 í lyftu ásamt lífverði blessunar­lega. Eitthvað hefur Jay Z sagt við Solange því hún trompaðist og réðist á hann sparkandi, gargandi og kýlandi. Myndir náðust af þeim vandræða­lega brosandi trítlandi út úr lyftunni út í glæsi­biðreiðar þar sem þær systur fóru saman í bíl og Jay fór einn í bíl. Þetta hefði líklega ekki kvissast út nema að öryggis­vörður á hótelinu sem þau voru á seldi mynd­bandið úr lyftunni til slúður­miðla fyrir um 250.000 dollara eða um 31 milljón íslenskra króna.

Úr varð skandall sem skók popp heiminn og sögu­sagnir um að hjónaband Bey og Jay Z stæði á brauð­fótum náðu hæstu hæðum. Þau stóðu af sér mesta stór­sjóinn og í raun kommentuðu sem minnst um þetta mál. Eina útskýringin sem kom fram var að þau væru venjulegt fólk og sem fjöl­skylda kæmu upp hitamál sem færu úr böndunum. Reyndar sagði Beyoncé í endur­hljóð­blöndun á Flawless lagi sínu að „...þegar þú ert með billjón dollara í lyftu þá mun allt verða vitlaust“. En þetta virðist ekki hafa skaðað Bey og Jay þar sem þau fóru á einn stærsta túr á ferlinum sínum í sumar og miðasalan stóð ekki á sér. Þar spiluðu þau á skilnaðar­sögurnar með dramatík og lagavali og héldu okkur aðdáendum í andnauð, óskandi að þau myndu aldrei skilja. En svo virðist sem að allt hafi blessast hjá þeim ef maður dæmir af myndunum frá nýafstaðinni Íslandsför þeirra þá virðast þau voðalega hamingjusöm að sjá. Vonandi ná þau framhjá næstu jólum skilnaðar­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár