Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur ekki svarað einni spurningu sem Stundin hefur sent honum í gegnum aðstoðarkonu hans, Sigríði Hallgrímsdóttur, síðastliðnar tæpu þrjár vikurnar. Síðasta svar frá aðstoðarrkonu Illuga sem hún sendi til Stundarinnar var laugardaginn 25. apríl, fyrir bráðum þremur vikum síðan. Stundin hefur margvíslegar spurningar um tengsl Illuga Gunnarssonar og Orku Energy sem blaðið hefur ekki fengið nein svör við. Þá hefur Illugi heldur ekki svarað fyrirspurnum Vísis um tengsl sín og Orku Energy.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir