Ein milljón íbúa Úkraínu flúið landið á sjö dögum

Óttast er að um fjórar milljónir íbúa Úkraínu muni neyðast til að flýja landið á næstunni. Á þeirri viku sem liðin er frá innrás Rússa hefur rúm milljón manna flúið landið. Utan­ríkis­ráðherra Rússlands sagði í dag að ráðamenn á Vestur­löndum væru að íhuga að skipuleggja stríð gegn Rússum og að þeir ættu að hugsa sig vel um áður en þeir geri það.

Um ein milljón Úkraínumanna hefur nú þegar neyðst til þess að flýja og að óbreyttu er talið að fjöldi flóttafólks eigi eftir að margfaldast
Um ein milljón Úkra­ínu­manna hefur nú þegar neyðst til þess að flýja og að óbreyttu er talið að fjöldi flótta­fólks eigi eftir að marg­fald­ast Mynd: Chris Melzer/Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNHCR)

„Á þeim fjörutíu árum sem ég hef starfað við flóttamanna­aðstoð víða um heim hef ég sjaldan séð svo mikinn fjölda fólks neyðast til að flýja heimili sín á svo skömmum tíma,“ sagði Filippo Grandi forstjóri Flóttamanna­aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í yfir­lýsingu í morgun en síðastliðna viku hefur rúmlega ein milljón íbúa Úkraínu flúið heimili sín.

Flest hafa flúið til PóllandsFlótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna birti í gær upp­lýs­ingar um hve margt fólk hefði flúið frá Úkraínu síð­ustu sjö daga.

Flóttamanna­aðstoð Sameinuðu þjóðanna birti kort sem sýnir hvert flótta­fólkið hefur farið. Flest hafa flúið til Póllands eða tæplega 550 þúsund manns. Næst flestir hafa farið til Ungverja­lands eða rúmlega 133 þúsund.

Þá segir Flóttamanna­aðstoð SÞ að auk þessa hafi tæplega 100 þúsund Úkraínu­menn flúið frá Donetsk og Luhansk í Úkraínu yfir landa­mærin til Rússlands dagana 18. til 23. febrúar, áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst aðfarar­nótt fimmtudagsins 24. febrúar. 

Föt og skór handa flótta­fólk­inuUm hálf milljón flótta­fólks hefur komið til Póllands síð­ustu sjö daga. Föt sem safnað hafði verið handa þeim biðu þeirra við landa­mærin

Talið er að nokkur þúsund íbúa Úkraínu, bæði hermenn og óbreyttir borgarar hafi dáið í árásunum, þeirra á meðal tólf börn, hið minnsta. 

,,Á hverri mín­útu er fólk að flýja skelfi­legt ofbeldi í Úkraínu“
Filippo Grandi,
for­stjóri Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna

Að óbreyttu telur Flóttamanna­aðstoð Sameinuðu þjóðanna að fjöldi þeirra sem neyðist til að leggja á flótta frá Úkraínu eigi eftir að marg­faldast og verði um fjórar milljónir áður en langt um líður.    

Við landa­mærinFlótta­fólk frá Úkraínu við landa­mæri Póllands í gær.

„Á hverri mínútu er fólk að flýja skelfilegt ofbeldi í Úkraínu en óvíst er hversu margt fólk hefur nú þegar flúið heimili sín en er enn í felum í Úkraínu Ef það tekst ekki að stöðva átökin strax munu milljónir manna til viðbótar neyðast til að flýja land,“ segir Grandi í yfir­lýsingunni. 

Segir Bandaríkjamenn með Evrópu undir hælnum  

Sergei Lavrov utan­ríkis­ráðherra Rússlands hélt í dag blaðamanna­fund þar sem blaða- og frétta­mönnum víða að úr heiminum gafst kostur á að spyrja hann út í innrás Rússa í Úkraínu.

Hætta ekki hern­að­ar­að­gerðum þó að samn­inga­við­ræður haldi áframSergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands sagði Rússa til­búna að halda við­ræðum áfram. Hern­að­ar­að­gerðir í Úkraínu myndu þó halda áfram meðan á við­ræðum stæði.

Lavrov var á fundinum tíðrætt um hegðun stjórnmála­fólks og blaða­manna á Vestur­löndum. Sagði hana byggða á tilfinningum en ekki stað­reyndum. ,,Nú hafa Bandaríkja­menn Evrópu undir hælnum.  Og við sjáum mjög vel núna hvaða hlutverki Evrópu­sambandið gegnir í raun og veru.  Hlutverk þar sem þeim er gert að koma því til skila að það sé annað hvort hrein illska eða hrein góðmennska í heiminum, eins og við sjáum í Hollywood. Það er afar óheppilegt,“ sagði Lavrov á fundinum í dag. Síðan bætti við að hann teldi að fólk myndi á endanum róast „hysterían mun fjara út,“ sagði hann og að þá væri hægt að setjast niður og semja.

Lavrov sagðist hafa reynt að útskýra stöðuna eftir fremsta megni en að svo virtist sem tilfinningar frétta­fólksins kæmu í veg fyrir að það næmi skila­boðin. „Ég skil að þið séuð í uppnámi en frétta­mennska snýst um að greina frá stað­reyndum ekki upplifun,“ sagði Lavrov. 

„Það er ekki brjálað fólk sem stjórnar Rúss­landi og það erum ekki við sem erum með kjarn­orku­stríð á heil­anum“
Sergei Lavrov,
utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands

Hann sagði einnig að Rússar væru tilbúnir að halda áfram að reyna að komast að samkomu­lagi en að aðgerðum þeirra í Úkraínu yrði haldið áfram á meðan á samninga­viðræðum stæði.

Segir Vesturlönd íhuga stríð gegn Rússum

Vladimír Pútín forseti Rússlands tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði skipað rússneskum hersveitum sem sjá um kjarnorku­vopn að vera í viðbragðs­stöðu. Lavriv var á fundinum í dag spurður hvort hann gæti fullvissað heims­byggðina um að ekki kæmi til kjarnorku­vopna­árásar. 

Hann sagði að allt tal um notkun kjarnorku­vopna væri komið frá stjórn­málamönnum á Vestur­löndum og Nató. „Það er ekki brjálað fólk sem stjórnar Rússlandi og það erum ekki við sem erum með kjarnorku­stríð á heilanum,“ sagði hann og varaði stjórnmála­leiðtoga á Vestur­löndum við að íhuga stríð gegn Rússum „Þeir þurfa að hugsa sig vel um áður en þeir skipuleggja stríð gegn okkur. Og þeir eru að íhuga það,“ fullyrti Sergei Lavrov utanríkisráherra Rússlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár