Ebóla ógnar súkkulaðinu

Fílabeins­ströndin er mesta kakó­bauna­framleiðslu­land heimsins, og Ebólu-veiran í Afríku er þegar farinn að hafa víðtæk áhrif á fram­leiðsluna í landinu, en súkkulaði er sem kunnugt er unnið úr baunum. Yfirvöld hafa ákveðið að loka landa­mærunum að Líberíu og Gíneu en þar fer um gríðarlegt magn af kakó­baunum, sem selt er inn á alþjóða­markaði.

Um 20 milljónir manna búa í Fílabeins­ströndinni en ekki hefur enná komið upp eitt einasta Ebólu-tilfelli í landinu. Yfirvöld eru þó uggandi og telja að það sé aðeins tíma­spursmál hvenær fyrsta Ebólu-smitið kemur upp. Alþjóða­samtök Kakó­fram­leiðenda (The World Cocoa Foundation) eru þegar farin að fylgjast náið með gangi máli, og eru stærstu hags­munaðilarnir í greininni, svo sem Nestlé, Mars og fleiri, farin að teikna upp sviðs­myndir af því ef stórkost­lega dregur úr framboði á mörkuðum, með þeim afleiðingum að verð þýtur upp.

Líklega er töluvert í að neytendur, þar með talið á Íslandi, finni fyrir þessum áhrifum. Og þó. Hlutirnir geta gerst hratt þegar óútreiknanlegir atburðir eru annars vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár