Trump virðist taka yfir Grænland og Kanada á samfélagsmiðlamyndum

Donald Trump birti myndir sem gefa til kynna bandaríska ásælni í Grænland og Kanada. Í færslu á Truth Social lýsir hann landinu lykil­atriði í heims­öryggi og segir ekki verða snúið til baka og birtir samhliða samskipti við leiðtoga NATO og forseta Frakk­lands..

Bandarískt yfirráðasvæði
Banda­rískt yfir­ráða­svæði Myndina birti Trump á eigin sam­fé­lags­miðli. Á henni sést hann með vara­for­seta sínum JD Vance og utan­rík­is­ráð­herr­anum Marko Rubio stinga niður fána á Græn­landi, við hlið skilt­ist sem á stendur „Grænland - banda­rískt yfir­ráða­svæði stofnað 2026“. Mynd: Trump

Donald Trump Bandaríkja­forseti birti í morgun færslu á samfélags­miðlinum Truth Social þar sem hann virðist stinga niður fána Banda­ríkjanna á Grænlandi. Á annarri mynd, sem hann birti um svipað leyti, sést hann lesa yfir evrópskum leiðtogum á skrif­stofu sinni fyrir framan kort sem gefur til kynna að Kanada tilheyri Banda­ríkjunum.

Í færslu á Truth Social segir hann Grænland vera „óumflýjanlegt fyrir þjóðar- og heims­öryggi“. Trump segist hafa átt „mjög gott símtal“ við Mark Rutte, framkvæmda­stjóra Atlantshafs­banda­lagsins, NATO, þar sem Grænland hafi verið til umræðu. Hann segist hafa samþykkt að funda með ýmsum í Davos í Sviss og ítrekar að ekki verði „snúið til baka“ í Grænlands­málinu.

Banda­ríski fán­innÁ mynd­inni sem Trump deildi á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social sést hann messa yfir evr­ópskum leið­togum fyrir framan kort af Ameríku, þar sem Kanada er sveipað banda­rískum fána.

„Grænland er óumflýjanlegt fyrir þjóðar- og heims­öryggi,“ skrifar Trump og bætir við að Banda­ríkin séu „eina valdið“ sem geti tryggt frið í heiminum, meðal annars vegna uppbyggingar bandaríska hersins á fyrra kjör­tímabili hans, sem hann segir halda áfram með auknum hraða.

Á myndinni sem Trump birtir sést hann standa á grófu, norðlægu landslagi með bandaríska fánann á lofti. Við hlið hans er skilti þar sem stendur „Greenland – US Territory – Est. 2026“. Fram­setning Trumps gengur jafnvel enn lengra en áður hefur sést í umræðu um Grænland og ásælni Bandaríkja­forseta í landið.

Trump lauk færslu sinni með því að segja að friður í heiminum yrði tryggður „með styrk“.

Forsetinn birti líka samskipti sín við bæði Mark Rutte, framkvæmda­stjóra NATO, og Emmanuel Macron, forseta Frakk­lands. „Við erum algjör­lega sammála um Sýrland. Við getum gert frábæra hluti gagnvart Íran. Ég skil ekki hvað þú ert að gera varðandi Grænland,“ skrifar Macron í texta­skilaboðum til Trumps.

Sá franski býðst svo til að setja upp fund með G7-ríkjunum í Davos í París á fimmtudag, þangað sem hann getur boðið bæði Úkraínu­mönnum, Dönum, Sýrlendingum og Rússum. Svo vill hann líka bjóða Trump í kvöldmat.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Allt sem Trump segir og gerir er til þess ætlað að heilla kjósendur hans í Bandaríkjunum. Hann er að undirbúa jarðvegin fyrir kosningu til forseta annað kjörtímabil og þá þarf hann að hafa sem flesta Bandaríkjamenn með sér í liði. Til vara mun hann nota sömu aðferð og Pútín notaði að láta kjósa lepp til valda á meðan stjórnrskránni er breitt svo hann sjálfur geti boðið sig fram.
    Taktíkin hans er að skapa glundroða og síðan leysa úr glundroðanum og hæla svo sjálfum sér fyrir það þannig að kjósendur hans taki eftir því og heillist enn meira af honum.
    0
  • BJ
    Benedikt Jónsson skrifaði
    Maðurinn sem vill ólmur fá friðarverðlaun er mesta ógn við frið í heiminum í dag.
    1
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Trump er að verða hættulegri heimsfriðnum en Pútín.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár