Vladímir Pútín valinn maður ársins í Rússlandi fimmtánda árið í röð

Forseti Rússlands, Vladímir Pútín, hefur verið valinn maður ársins í Rússlandi, fimmtánda árið í röð, í sjálf­stæðri könnun Public Opinion Foundation. Breska blaðið Independent gerði niður­stöðuna að umtals­efni í umfjöllun sinni. Töluvert hefur verið gert úr þessari niður­stöðu á hverju ári, undan­farin fimmtán ár, þó að umfang könnunarinnar sé verulega lítið í hlutfalli við íbúa­fjölda í Rússlandi, en ríflega 143 milljónir manna búa í landinu. Könnun náði til 1.500 manns í 43 héröðum landsins.

Óhætt er að segja að niður­staðan komi fram á frekar slæmum tíma fyrir Pútín. Efnahagur Rússlands er fall­valtur eftir stjórn­laust fall rúblunnar fyrr í vikunni, sem meðal annars er rakið til skarprar lækkunar á olíuverði. Frá því í júlí hefur verð á olíu fallið um meira en 40 prósent, sem hefur komið illa við olíu­iðnaðinn í Rússlandi. Seðla­banki Rússlands hefur reynt af veikum mætti að sporna gegn falli rúblunnar, meðal annars með því að hækka stýri­vexti úr 10,5 í 17 prósent.

Drum roll please: Russia's man of the year for the 15th time in a row is... http://t.co/p8AiVtYySX pic.twitter.com/B2P9j7AH7D

— The Independent (@Independent) December 17, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár